Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. janúar 2025 13:49 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er fyrrverandi ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm Áslaug Arna segir Sjálfstæðisflokkinn hafa misst sjón af stefnu sinni og þarf flokkurinn að fara aftur í grunnstefnuna. Hún íhugar alvarlega formannsframboð. „
Okkur sem sitjum í þingflokknum eða komum til greina með að sitja í næstu forystu heldur verður ekki síst að snúast um hvert flokkurinn ætlar að fara. Hvernig hann ætlar að byggja upp ferskt og nýtt upphaf, hvernig hann ætlar að leita í rætur sínar um stefnuna, líta inn á við og gera einfaldlega áætlun um að ná meiri árangri. Ég held að sú umræða sem mér finnst mest spennandi og hef talað fyrir lengi, allt frá því að ég var ritari Sjálfstæðisflokksins fyrir um áratug,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir á Sprengisandi í morgun. Áslaug segist hafa verið í samtali við flokksmenn undanfarna daga um hvaða verkefni séu fram undan. „Það er bæði að líta inn á við, við þurfum að horfa aðeins í grunninn okkar, hvernig við getum hluti betur, við þurfum að þora. Öflugir stjórnmálaflokkar þurfa að líta inn í framtíðina og nútímann, hvernig þeir skipuleggja sig og ná árangri. Ekki síst þurfum við að vera öflugri málsvarar stefnunnar okkar,“ segir hún. „Grunnstefnan nær til miklu fleiri en við erum að ná til í dag. Það eru of margir sem eru ekki að fylgja okkur að máli í dag en aðhyllast samt grunnstefnu Sjálfstæðisflokksins. Það er verkefni líka. Okkur er legið á hálsi að tala bara fyrir ákveðna þjóðfélagshópa. Skilja ekki þarfir annarra hópa og svo framvegis en það er líka vilji vinstrimanna að skilgreina okkur með þessum hætti.“ Stefnu Sjálfstæðisflokksins ógnað af nýrri ríkisstjórn „Ég held að þessi grundvallarsjónarmið Sjálfstæðisstefnunnar sem var byggt á frá upphafi um bæði sjálfstæði og svo umbætur á grundvelli einstaklings og atvinnufrelsi sé talsvert ógnað af núverandi ríkisstjórn. Við þurfum að veita harða andstæðu svo að svo sé ekki,“ segir Áslaug Arna. Þá minntist Áslaug einnig á nýjan utanríkisráðherra. „Þá er ég hrædd um þessar skattahækkanir sem ríkisstjórnin boðar, ekki síst að hún virðist ætla ganga hratt og örugglega inn í Evrópusambandið og er mætt í Brussel bara nokkrum dögum eftir að blekið á stjórnarsáttmálanum var þornað,“ segir Áslaug Arna. „Hún er þarna mætt á fund með stækkunarstjórunum og það var kannski ekki mikið talað í kosningabaráttunni um þetta plan,“ segir hún. „Það er óheiðarlegt að ætla að ganga inn í Evrópusambandið strax að loknum kosningum og greina ekki kjósendum frá því í kosningabaráttunni. Þetta virðist hafa verið eina planið sem var tilbúið frá þeim en ef að leiðin til baka úr því sem gæti gert á næstu misserum getur verið löng en við þurfum að byrja núna og Sjálfstæðisflokkurinn hefur engan tíma að missa.“ Brennur fyrir stefnunni „Ég brenn einfaldlega og hef ástríðu fyrir Sjálfstæðisstefnunni og tel ef hún fái þá náum við meiri árangri. Algjörlega burtséð niðurstöðum um forystukjör þá langar mig að taka þátt í þessu.“ Þú ert sem sagt að velta fyrir þér einhvers konar framboði? „Já ég er að gera það,“ segir Áslaug. „Ég hef fengið mikla hvatningu til að gefa kost á mér í formannskjörið og er að hugsa um það.“ „Ég hef átt alveg ótrúlega góð samtöl við aðra þingmenn sem nefndir hafa verið í því. Það hefur verið mjög góð og mikilvæg samtöl, bara trúnaðarsamtöl með hagsmuni flokksins að leiðarljósi. Hvernig við getum gert þetta, hvað þarf að gera og hvar flokkurinn stendur. Við erum að mælast með sögulega lágt fylgi á sama tíma og erindið hefur í raun aldrei verið brýnna. Flokkurinn þarf einfaldlega festu og nýtt upphaf, sama hvað tekur við. Ég held að það skipti ekki síst máli að við getum valið forystu og gengið samhent út af landsfundi, klári þau stóru verkefni sem bíða okkar á bak við nýja forystu.“ Hér er einungis stiklað á stóru en viðtalið í heild sinni má hlusta á í spilaranum hér fyrir neðan.
Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir Hver tekur við af Bjarna? Þetta eru nöfnin sem oftast eru nefnd Nokkur nöfn hafa verið nefnd þegar talið berst að hugsanlegum arftaka Bjarna Benediktssonar sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Bjarni tilkynnti í dag að hann muni ekki sækjast eftir endurkjöri á næsta landsfundi flokksins, en hann hefur verið formaður í tæp sextán ár og er einn þaulsetnasti formaður Sjálfstæðisflokksins í sögunni. Sjálfstæðismenn bæði innan og utan þingflokksins hafa verið orðaðir við embættið. 6. janúar 2025 17:30 Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri Töluverðar líkur verða að teljast á að Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins gefi kost á sér í embætti formanns flokksins á landsfundi eftir sex vikur. Hún segir flokkinn standa á tímamótum í stjórnarandstöðu eftir tæplega tólf ára samfellda stjórnarsetu. Flokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri í nálgun sinni til mála. 18. janúar 2025 08:03 Mest lesið Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Innlent Vaktin: Vopnahlé tekur gildi á Gasa Erlent Tuttugu manns í rútuslysi Innlent „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Innlent „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Innlent Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf Innlent „Sérstakt gleðiefni og gleður mitt hjarta“ Innlent TikTok bann í Bandaríkjunum Erlent Stofnaði eigin „meme“-rafmynt rétt fyrir embættistöku Erlent Mun færri slasaðir eftir skíðaslysið en talið var í fyrstu Erlent Fleiri fréttir „Sérstakt gleðiefni og gleður mitt hjarta“ Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Vill að þingið leyfi Hvammsvirkjun með bráðabirgðalögum Vopnahlé og ákvörðun tekin um rýmingu á Austfjörðum Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Tuttugu manns í rútuslysi Háskólinn, Hvammsvirkun og Sjálfstæðisflokkurinn á Sprengisandi Landið mest allt gult í dag Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Ný og glæsileg heilsugæslustöð opnuð í Vogum „Algjört þjóðaröryggismál að hafa þetta í lagi“ Vegalokanir líklegar í Öræfasveit á morgun Drepin í árás daginn fyrir vopnahlé Umfangsmikil æfing á rofi á sæstrengjum og kveðjustund í Hafnarfirði Hvalir spókuðu sig í Hafnarfjarðarhöfn Prófessorar íhuga verkfall: „40% akademísks starfsfólks í kulnun eða komin langt á leið“ E. coli fannst í neysluvatni Ærslabelgur og aparóla óskast á Hvolsvöll Grímuklæddi maðurinn kúkaði aftur á bílinn Snarpur skjálfti við Trölladyngju Undirbúa verkföll: „Þetta er ömurleg staða að svona skuli standa“ Sagði nei við sölu Íslandsbanka en treystir ráðherra fullkomlega nú Breytt afstaða til sölu á Íslandsbanka og samgöngutruflanir Veðurviðvaranir og vegalokanir Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri Reyndi að stinga af á bíl og svo á hlaupum Fengu tæpar fimm og sex milljónir króna í tvöföldum launagreiðslum Viðbúin því að fylgjendum fækki í kjölfar TikTok-banns Sjá meira
Hver tekur við af Bjarna? Þetta eru nöfnin sem oftast eru nefnd Nokkur nöfn hafa verið nefnd þegar talið berst að hugsanlegum arftaka Bjarna Benediktssonar sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Bjarni tilkynnti í dag að hann muni ekki sækjast eftir endurkjöri á næsta landsfundi flokksins, en hann hefur verið formaður í tæp sextán ár og er einn þaulsetnasti formaður Sjálfstæðisflokksins í sögunni. Sjálfstæðismenn bæði innan og utan þingflokksins hafa verið orðaðir við embættið. 6. janúar 2025 17:30
Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri Töluverðar líkur verða að teljast á að Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins gefi kost á sér í embætti formanns flokksins á landsfundi eftir sex vikur. Hún segir flokkinn standa á tímamótum í stjórnarandstöðu eftir tæplega tólf ára samfellda stjórnarsetu. Flokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri í nálgun sinni til mála. 18. janúar 2025 08:03