Handbolti

Lætur ekki glepjast þrátt fyrir þrettán marka sigur: „Hafa ekki efni á þessu“

Aron Guðmundsson skrifar
Einar Jónsson, þjálfari Fram og einn af sérfræðingum hlaðvarpsins Besta sætið hafði eitt og annað að segja um frammistöðu íslenka karlalandsliðsins í handbolta eftir þrettán marka sigur gegn Grænhöfðaeyjum í gær.
Einar Jónsson, þjálfari Fram og einn af sérfræðingum hlaðvarpsins Besta sætið hafði eitt og annað að segja um frammistöðu íslenka karlalandsliðsins í handbolta eftir þrettán marka sigur gegn Grænhöfðaeyjum í gær. Vísir/Samsett mynd

Ís­lenska karla­lands­liðið hóf veg­ferð sína á HM í hand­bolta með þrettán marka sigri gegn Græn­höfða­eyjum. Rætt var um frammistöðuna í Besta sætinu þar sem að sér­fræðingar þáttarins létu þennan sigur á móti liði „sem ætti erfitt með að halda sér í Olís deildinni“ ekki slá ryki í augun á sér. Margt gott við leik ís­lenska liðsins en mikið rými til bætinga.

Þeir Einar Jóns­son, þjálfari Fram og Ás­geir Örn Hall­gríms­son, þjálfari Hauka sem og fyrr­verandi at­vinnu- og lands­liðs­maður, voru sér­fræðingar þáttarins.

Að­spurður sagði Einar til­finningar sínar varðandi frammistöðu ís­lenska lands­liðsins í leiknum vera beggja blands.

„Bara svona já og nei. Fínt að vinna þetta, en mót­staðan var engin. Þetta lið væri í basli með að halda sér í Olís deildinni. Mér fannst fyrri hálf­leikurinn ágætur, ekki mikið meira en það. Seinni hálf­leikurinn var síðan bæði leiðin­legur og lé­legur. Hræðir mig svolítið fyrir fram­haldið, ég verð að segja það.“

„Við vorum á pari“

Heilt yfir var Ás­geir Örn sáttur með frammistöðu ís­lenska lands­liðsins.

„Þrettán marka sigur, við fáum á okkur tuttugu og eitt mark. Jú ég held við getum alveg verið þokka­lega sáttir með þetta. Ég er hins vegar alveg sammála Einari, þetta var arfaslakt og illa skipu­lagt lið sem við vorum að mæta. Bara lé­legir.“ 

„Ég var ein­mitt að hugsa það yfir leiknum á rétt tæp­lega fer­tugustu mínútu að þetta væri bara helvíti fínt. Ef við myndum halda dampi yrði ég helvíti sáttur með þetta. En þá kom bara helvíti vondur kafli. Fórum úr fjórtán marka for­ystu niður í níu, fimm sóknir í röð sem við skorum ekki og þeir skora fimm í röð. Mér fannst þetta mjög lé­legt. En við náðum aðeins að slá frá okkur. Það er erfitt að halda þetta út. Við vorum á pari með þessum þrettán marka sigri.“

Ásgeir Örn Hallgrímsson Vísir/Pawel Cieslikiewicz

„Þetta sýndi mér það ekki“

Fyrir fram hefur loka­leiknum við Slóveníu verið stillt upp sem úr­slita­leik riðilsins. Forms­at­riði sé að vinna Græn­höfða­eyjar og Kúbu. Einar er að mörgu leiti til sammála Ás­geiri en segir núverandi lands­lið ekki geta til­einkað sér þá hugsun sem Ás­geir Örn og liðs­félagar hans í fyrra lands­liði gátu til­einkað sér.

„Ég skil alveg hvað Ás­geir er að fara,“ bætti Einar svo við. „Með allan sinn lands­liðs­feril að baki, sem var frábær, og hann spilaði í frábæru lands­liði. Lið sem hefði alveg geta labbað úr svona leik og hugsað með sér: „Við gerðum okkar og vitum alveg hvaða leikur það er sem á endanum skiptir máli.“ Ég skil alveg hvaðan hann kemur. En mér finnst þetta lands­lið sem við höfum núna ekki hafa efni á þessu. Þeir verða sýna okkur það, í hverjum einasta leik, að það séu fram­farir. Að þeir séu á réttri leið og að það sé eitt­hvað að fara gerast fram­u. Þetta sýndi mér það ekki.“

Hægt er að hlusta á ítar­legt upp­gjör þeirra félaga í Besta sætinu hér fyrir neðan. Þáttinn má finna á helstu hlað­varps­veitum. Næsti leikur Ís­lands á HM er á laugar­daginn kemur gegn Kúbu. Helstu fréttir af HM má finna hér á Vísi dag­lega.


Tengdar fréttir

Töfræðin á móti Grænhöfðaeyjum: Orri nýtti allt sitt í fyrsta HM-leiknum

Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann þrettán marka sigur á Grænhöfðaeyjum, 34-21, í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta en þrátt fyrir öruggan sigur þá átti íslenska liðið engan stórleik. Liðið kláraði engu að síður verkefnið nokkuð sannfærandi og sigurinn var aldrei í hættu.

„Þeir eru ekki með lélega handboltamenn“

„Það var hrikalega skemmtilegt að byrja þetta mót, og á svona sigri,“ sagði hornamaðurinn Orri Freyr Þorkelsson eftir frábæran fyrsta leik sinn á HM í handbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×