Fíaskóbyrjun segir í frétt TV2 í Noregi um leikinn og kallað eftir breytingum. Ekki að ástæðulausu.
Þeir norsku eru strax komnir í strembna stöðu fyrir milliriðilinn með tapi í fyrsta leik en allar líkur eru á því að þeir brasilísku fylgi þeim þangað eftir þriggja marka sigur þeirra, 29-26, í gær.
Portúgalar og Brasilíumenn leiða E-riðilinn en þeir portúgölsku unnu Bandaríkjamenn 30-21 áður en kom að brasilíska sigrinum. Þau lið mætast á morgun en Norðmenn mæta Bandaríkjunum.
Tap Norðmanna er aðeins það fjórða í sögunni hjá evrópskri heimaþjóð fyrir liði utan Evrópu. Fyrst gerðist það hjá Frökkum sem töpuðu 22-13 fyrir Japönum í París 1970 en strákarnir okkar í íslenska landsliðinu voru aðrir í röðinni.
Ísland tapaði 26-23 fyrir Suður-Kóreu í Laugardalshöll árið 1995 en Svíar eru einnig í þessum lítt eftirsótta hópi þar sem þeir töpuðu afar óvænt fyrir Argentínu 22-27 í Gautaborg 2011. Norðmenn bætast nú í hóp með Frakklandi, Íslandi og Svíþjóð sem eru einu fjórar Evrópuþjóðirnar til að tapa fyrir liði utan Evrópu á heimavelli á heimsmeistaramóti.
Strákarnir okkar hefja leik á HM í dag er þeir mæta Grænhöfðaeyjum í Zagreb klukkan 19:30. Liðinu verður fylgt vel eftir á Vísi í allan dag fram að og eftir leik.