Makinn hélt framhjá: „Ég get ekki fyrirgefið“ Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir skrifar 14. janúar 2025 20:01 Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir er sálfræðingur frá Háskóla Íslands og para- og kynlífsráðgjafi frá Michigan Háskóla. Spurning barst frá lesenda: „Maðurinn minn hélt framhjá mér, við erum að reyna að vinna úr þessu en ég get ekki fyrirgefið eða horft framhjá þessu. Það er komið heilt ár og ég er enn í sárum og get stundum ekki talað við hann. Er von að þetta lagist eða er þetta dauðadæmt?“ - 45 ára kona. Nú hef ég ekki miklar upplýsingar um ykkur og finn strax hvað það vakna margar spurningar hjá mér. Með hverjum hélt hann framhjá? Var það einu sinni eða oftar? Hvernig komst þú að því? Hvernig hefur samband ykkar verið fram að þessu? Hafið þið upplifað önnur áföll í sambandinu? Hafið þið leitað til pararáðgjafa? Kynlífið með Aldísi, sálfræðingi og kynlífsráðgjafa, er nýr vikulegur liður á Vísi. Í honum fræðir Aldís lesendur um kynlíf og svarar spurningum frá lesendum. Ef þú vilt senda Aldísi spurningu er hægt að finna spurningaform neðst í greininni. En byrjum bara á byrjuninni. Það er fullkomlega eðlilegt að vera enn í sárum ári seinna. Fyrir mörg sem þurfa að vinna úr framhjáhaldi tekur það gjarnan lengri tíma en þau hefði órað fyrir. Það tekur bæði tíma að vinna úr því sem svikin hafa tekið frá þér en einnig tekur tíma að byggja upp sambandið aftur. Framhjáhald sviptir okkur ekki bara því trausti sem áður var í sambandinu heldur getur það svipt okkur sjálfsörygginu, gleðinni og þeirri vellíðan sem við fundum áður í sambandinu og jafnvel í eigin skinni. Það er annað að standa raunverulega í slíkum sporum en að ímynda sér hvernig það gæti verið.Vísir/Getty Þegar upp kemst um framhjáhald er mjög misjafnt hvaða viðbrögð koma upp hjá þeim sem var svikinn. Oft sit ég með fólki sem segir mér: „Ég hélt alltaf að ég myndi labba í burtu eða að ég myndi aldrei sætta mig við neitt í líkingu við þetta.“ En eins og með margt í lífinu þá er öðruvísi að standa í þessum sporum eða ímynda sér þessar aðstæður. Ekki öll pör geta unnið úr framhjáhaldi Sumum pörum tekst ekki að vinna úr framhjáhaldi og þá tekur skilnaðarferli við. Í þeim tilfellum upplifir annar eða báðir aðilar að það sé ekki hægt að vinna sig út úr þeim svikum sem upp hafa komið. Önnur pör halda áfram að vera saman og leggja af stað í þá vegferð að vinna úr framhjáhaldinu. Í þó nokkur skipti hef ég heyrt pör lýsa því að fyrra sambandið hafi í raun endað þegar svikin komu í ljós og nýtt samband orðið til. Sambandið verður skiljanlega aldrei alveg eins og það var áður. Það er því ómögulegt að bera saman tímann fyrir og eftir svik. Fyrir sum pör felst nýi kaflinn í miklu uppgjöri, samtölum, pararáðgjöf og sjálfsvinnu. Þá verður nýi kaflinn mjög frábrugðinn þeim köflum sem á undan komu! Í viðtölum hef ég heyrt pör lýsa því hvernig tenging þeirra hefur þroskast, breyst eða jafnvel orðið dýpri, ekki vegna framhjáhaldsins heldur þeirri vinnu sem parið lagði í uppbyggingu sambandsins í kjölfar svikanna. Sum pör geta lagt vinnu í sambandið eftir slík svik, önnur ekki.Vísir/Getty En hvað er mikilvægt að hafa í huga þegar þú ert að vinna úr svikum eða framhjáhaldi? Það að vinna úr framhjáhaldinu er á herðum ykkar beggja. Báðir aðilar þurfa að leggja á sig alls konar vinnu, sitt í hvoru lagi og saman. Sá sem sveik þarf að axla ábyrgð, sýna maka sínum að hann/hún/hán sjái þann sársauka sem hegðun þeirra hefur valdið og í einlægni biðjast fyrirgefningar. Einnig skiptir gífurlegu máli að vera gagnsær, þolinmóður og vinna hörðum höndum að því að endurbyggja traustið. Sá sem verður fyrir svikunum þarf að fá rými til að vinna úr þeim sársauka og skoða hvort þú treysti þér í þá vinnu að byggja upp sambandið á ný. Það er ekki sjálfgefið að treysta sér í þá vinnu en þá er líka gott að vera heiðarleg með það. Að vinna úr sársaukanum og reiðinni eru lykilþættir. Passið ykkur að detta ekki í þá gryfju að ræða framhjáhaldið í smáatriðum. Við viljum oft vita ALLT! En það þjónar ekki tilgangi að fá of miklar upplýsingar, þá verða til nýjar og nýjar kveikjur (e. triggers) sem minna á framhjáhaldið. Sumt er mikilvægt að fá upplýsingar um en staldrið við áður en þið eruð farin að ræða smáatriðin. Það er gott að skoða hvernig sambandið var fyrir svikin. Hvernig gekk ykkur að rækta sambandið? Hafið þið rætt mörk og hvað felst í framhjáhaldi? Ef ekki, er það mjög mikilvægt samtal! Hvað er framhjáhald eða svik í ykkar huga? Og eruð þið sammála um þessi atriði? Ég mæli að lokum með því að vinna með fagaðila. Pararáðgjöf getur verið mjög hjálpleg en líka einstaklingsmeðferð. Við Indíana Rós, kynfræðingur, fjöllum um framhjáhald í nýlegum þætti af hlaðvarpinu Kynlífið sem finna má hér: Til þín kæri lesandi vil ég segja að aðeins þú getur í raun ákveðið hvort sambandið sé dauðadæmt. Spurningin er ekki aðeins hvort þú treystir þér í þá vinnu að byggja upp sambandið á ný heldur hvort þú viljir það. Gangi þér vel <3 Alla pistla Aldísar má finna á sama stað á Vísi. Kynlíf Kynlífið með Aldísi Tengdar fréttir „Mig langar að prófa nýja villtari hluti en konan ekki“ Spurning barst frá lesenda: „Ég og konan mínum höfum verið saman í 3 ár. Ég upplifi að ég vilji meiri fjölbreytileika í kynlífinu okkur heldur en hún. Þegar við byrjuðum saman þá ræddum við þessi mál og vorum sammála um að vilja prófa nýja hluti en nú virðist það hafa slökknað hjá henni. Á meðan mig langar að prófa nýja og villtari hluti þá hefur hefðbundið kynlíf orðið óspennandi fyrir mér og kynlöngun mín minnkað til muna. Hverju myndir þú mæla með?” - 36 ára karl. 26. nóvember 2024 20:01 Hvernig hætti ég að feika það? Spurning barst frá lesenda „Er komin í nýtt samband en frá byrjun er ég búin að feika fullnægingu og finnst of seint og erfitt að segja honum frá því núna, vil ekki særa hann. Með fyrrverandi manninum mínum fékk ég fullnægingar því hann var betri í að gefa mér munnmök. Ég er búin að reyna að segja nýja kærastanum til en hann hlustar ekki eða byrjar eins og ég vil en fer svo í eitthvað annað. Ég er bara í því að þóknast honum, held ég, og vil ekki særa hann. Hvernig nálgast ég þetta án þess að særa manninn?” 19. nóvember 2024 20:02 Hvað skal gera þegar tilhugsunin er meira sexý en kynlífið? Spurning barst frá lesenda: „Tilhugsunin um kynlíf með makanum er meira sexí en þegar á hólminn er komið. Eins og ég girnist hann ekki eða ég laðast ekki að honum þannig. Getur þú útskýrt?”- 36 ára kona. 12. nóvember 2024 20:00 Mest lesið Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Lífið Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Lífið Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Lífið HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Lífið Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Lífið Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart Lífið Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Lífið Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Gagnrýni Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt „Sjúllaður“ sítrónu og jarðaberja næturgrautur Draumadís Þórhildar og Hjalta komin í heiminn Svona verður dagskráin á Menningarnótt Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Nafn sonarins innblásið af Frakklandi Súrrealískt þegar Jay Leno vinkaði fjölskyldunni á Facetime Borgarstjóri fagnaði brúðkaupsafmæli með strætóferð og indverskum mat Svarar samskiptastjóra Trump sem kallaði hann lúser Þetta borðar Lína Birgitta alla morgna „Indælasti dómari í heimi“ er látinn Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig „Pylsa“ sækir í sig veðrið Ómótstæðileg ítölsk steikarloka úr smiðju Hildar Rutar Sjá meira
Nú hef ég ekki miklar upplýsingar um ykkur og finn strax hvað það vakna margar spurningar hjá mér. Með hverjum hélt hann framhjá? Var það einu sinni eða oftar? Hvernig komst þú að því? Hvernig hefur samband ykkar verið fram að þessu? Hafið þið upplifað önnur áföll í sambandinu? Hafið þið leitað til pararáðgjafa? Kynlífið með Aldísi, sálfræðingi og kynlífsráðgjafa, er nýr vikulegur liður á Vísi. Í honum fræðir Aldís lesendur um kynlíf og svarar spurningum frá lesendum. Ef þú vilt senda Aldísi spurningu er hægt að finna spurningaform neðst í greininni. En byrjum bara á byrjuninni. Það er fullkomlega eðlilegt að vera enn í sárum ári seinna. Fyrir mörg sem þurfa að vinna úr framhjáhaldi tekur það gjarnan lengri tíma en þau hefði órað fyrir. Það tekur bæði tíma að vinna úr því sem svikin hafa tekið frá þér en einnig tekur tíma að byggja upp sambandið aftur. Framhjáhald sviptir okkur ekki bara því trausti sem áður var í sambandinu heldur getur það svipt okkur sjálfsörygginu, gleðinni og þeirri vellíðan sem við fundum áður í sambandinu og jafnvel í eigin skinni. Það er annað að standa raunverulega í slíkum sporum en að ímynda sér hvernig það gæti verið.Vísir/Getty Þegar upp kemst um framhjáhald er mjög misjafnt hvaða viðbrögð koma upp hjá þeim sem var svikinn. Oft sit ég með fólki sem segir mér: „Ég hélt alltaf að ég myndi labba í burtu eða að ég myndi aldrei sætta mig við neitt í líkingu við þetta.“ En eins og með margt í lífinu þá er öðruvísi að standa í þessum sporum eða ímynda sér þessar aðstæður. Ekki öll pör geta unnið úr framhjáhaldi Sumum pörum tekst ekki að vinna úr framhjáhaldi og þá tekur skilnaðarferli við. Í þeim tilfellum upplifir annar eða báðir aðilar að það sé ekki hægt að vinna sig út úr þeim svikum sem upp hafa komið. Önnur pör halda áfram að vera saman og leggja af stað í þá vegferð að vinna úr framhjáhaldinu. Í þó nokkur skipti hef ég heyrt pör lýsa því að fyrra sambandið hafi í raun endað þegar svikin komu í ljós og nýtt samband orðið til. Sambandið verður skiljanlega aldrei alveg eins og það var áður. Það er því ómögulegt að bera saman tímann fyrir og eftir svik. Fyrir sum pör felst nýi kaflinn í miklu uppgjöri, samtölum, pararáðgjöf og sjálfsvinnu. Þá verður nýi kaflinn mjög frábrugðinn þeim köflum sem á undan komu! Í viðtölum hef ég heyrt pör lýsa því hvernig tenging þeirra hefur þroskast, breyst eða jafnvel orðið dýpri, ekki vegna framhjáhaldsins heldur þeirri vinnu sem parið lagði í uppbyggingu sambandsins í kjölfar svikanna. Sum pör geta lagt vinnu í sambandið eftir slík svik, önnur ekki.Vísir/Getty En hvað er mikilvægt að hafa í huga þegar þú ert að vinna úr svikum eða framhjáhaldi? Það að vinna úr framhjáhaldinu er á herðum ykkar beggja. Báðir aðilar þurfa að leggja á sig alls konar vinnu, sitt í hvoru lagi og saman. Sá sem sveik þarf að axla ábyrgð, sýna maka sínum að hann/hún/hán sjái þann sársauka sem hegðun þeirra hefur valdið og í einlægni biðjast fyrirgefningar. Einnig skiptir gífurlegu máli að vera gagnsær, þolinmóður og vinna hörðum höndum að því að endurbyggja traustið. Sá sem verður fyrir svikunum þarf að fá rými til að vinna úr þeim sársauka og skoða hvort þú treysti þér í þá vinnu að byggja upp sambandið á ný. Það er ekki sjálfgefið að treysta sér í þá vinnu en þá er líka gott að vera heiðarleg með það. Að vinna úr sársaukanum og reiðinni eru lykilþættir. Passið ykkur að detta ekki í þá gryfju að ræða framhjáhaldið í smáatriðum. Við viljum oft vita ALLT! En það þjónar ekki tilgangi að fá of miklar upplýsingar, þá verða til nýjar og nýjar kveikjur (e. triggers) sem minna á framhjáhaldið. Sumt er mikilvægt að fá upplýsingar um en staldrið við áður en þið eruð farin að ræða smáatriðin. Það er gott að skoða hvernig sambandið var fyrir svikin. Hvernig gekk ykkur að rækta sambandið? Hafið þið rætt mörk og hvað felst í framhjáhaldi? Ef ekki, er það mjög mikilvægt samtal! Hvað er framhjáhald eða svik í ykkar huga? Og eruð þið sammála um þessi atriði? Ég mæli að lokum með því að vinna með fagaðila. Pararáðgjöf getur verið mjög hjálpleg en líka einstaklingsmeðferð. Við Indíana Rós, kynfræðingur, fjöllum um framhjáhald í nýlegum þætti af hlaðvarpinu Kynlífið sem finna má hér: Til þín kæri lesandi vil ég segja að aðeins þú getur í raun ákveðið hvort sambandið sé dauðadæmt. Spurningin er ekki aðeins hvort þú treystir þér í þá vinnu að byggja upp sambandið á ný heldur hvort þú viljir það. Gangi þér vel <3 Alla pistla Aldísar má finna á sama stað á Vísi.
Kynlífið með Aldísi, sálfræðingi og kynlífsráðgjafa, er nýr vikulegur liður á Vísi. Í honum fræðir Aldís lesendur um kynlíf og svarar spurningum frá lesendum. Ef þú vilt senda Aldísi spurningu er hægt að finna spurningaform neðst í greininni.
Kynlíf Kynlífið með Aldísi Tengdar fréttir „Mig langar að prófa nýja villtari hluti en konan ekki“ Spurning barst frá lesenda: „Ég og konan mínum höfum verið saman í 3 ár. Ég upplifi að ég vilji meiri fjölbreytileika í kynlífinu okkur heldur en hún. Þegar við byrjuðum saman þá ræddum við þessi mál og vorum sammála um að vilja prófa nýja hluti en nú virðist það hafa slökknað hjá henni. Á meðan mig langar að prófa nýja og villtari hluti þá hefur hefðbundið kynlíf orðið óspennandi fyrir mér og kynlöngun mín minnkað til muna. Hverju myndir þú mæla með?” - 36 ára karl. 26. nóvember 2024 20:01 Hvernig hætti ég að feika það? Spurning barst frá lesenda „Er komin í nýtt samband en frá byrjun er ég búin að feika fullnægingu og finnst of seint og erfitt að segja honum frá því núna, vil ekki særa hann. Með fyrrverandi manninum mínum fékk ég fullnægingar því hann var betri í að gefa mér munnmök. Ég er búin að reyna að segja nýja kærastanum til en hann hlustar ekki eða byrjar eins og ég vil en fer svo í eitthvað annað. Ég er bara í því að þóknast honum, held ég, og vil ekki særa hann. Hvernig nálgast ég þetta án þess að særa manninn?” 19. nóvember 2024 20:02 Hvað skal gera þegar tilhugsunin er meira sexý en kynlífið? Spurning barst frá lesenda: „Tilhugsunin um kynlíf með makanum er meira sexí en þegar á hólminn er komið. Eins og ég girnist hann ekki eða ég laðast ekki að honum þannig. Getur þú útskýrt?”- 36 ára kona. 12. nóvember 2024 20:00 Mest lesið Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Lífið Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Lífið Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Lífið HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Lífið Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Lífið Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart Lífið Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Lífið Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Gagnrýni Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt „Sjúllaður“ sítrónu og jarðaberja næturgrautur Draumadís Þórhildar og Hjalta komin í heiminn Svona verður dagskráin á Menningarnótt Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Nafn sonarins innblásið af Frakklandi Súrrealískt þegar Jay Leno vinkaði fjölskyldunni á Facetime Borgarstjóri fagnaði brúðkaupsafmæli með strætóferð og indverskum mat Svarar samskiptastjóra Trump sem kallaði hann lúser Þetta borðar Lína Birgitta alla morgna „Indælasti dómari í heimi“ er látinn Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig „Pylsa“ sækir í sig veðrið Ómótstæðileg ítölsk steikarloka úr smiðju Hildar Rutar Sjá meira
„Mig langar að prófa nýja villtari hluti en konan ekki“ Spurning barst frá lesenda: „Ég og konan mínum höfum verið saman í 3 ár. Ég upplifi að ég vilji meiri fjölbreytileika í kynlífinu okkur heldur en hún. Þegar við byrjuðum saman þá ræddum við þessi mál og vorum sammála um að vilja prófa nýja hluti en nú virðist það hafa slökknað hjá henni. Á meðan mig langar að prófa nýja og villtari hluti þá hefur hefðbundið kynlíf orðið óspennandi fyrir mér og kynlöngun mín minnkað til muna. Hverju myndir þú mæla með?” - 36 ára karl. 26. nóvember 2024 20:01
Hvernig hætti ég að feika það? Spurning barst frá lesenda „Er komin í nýtt samband en frá byrjun er ég búin að feika fullnægingu og finnst of seint og erfitt að segja honum frá því núna, vil ekki særa hann. Með fyrrverandi manninum mínum fékk ég fullnægingar því hann var betri í að gefa mér munnmök. Ég er búin að reyna að segja nýja kærastanum til en hann hlustar ekki eða byrjar eins og ég vil en fer svo í eitthvað annað. Ég er bara í því að þóknast honum, held ég, og vil ekki særa hann. Hvernig nálgast ég þetta án þess að særa manninn?” 19. nóvember 2024 20:02
Hvað skal gera þegar tilhugsunin er meira sexý en kynlífið? Spurning barst frá lesenda: „Tilhugsunin um kynlíf með makanum er meira sexí en þegar á hólminn er komið. Eins og ég girnist hann ekki eða ég laðast ekki að honum þannig. Getur þú útskýrt?”- 36 ára kona. 12. nóvember 2024 20:00