Handbolti

Mun aldrei hitta neinn sem byggir upp lið eins og Þórir

Sindri Sverrisson skrifar
Stine Oftedal Dahmke var lengi fyrirliði undir stjórn Þóris Hergeirssonar. Þau hafa nú bæði sagt skilið við norska handboltalandsliðið.
Stine Oftedal Dahmke var lengi fyrirliði undir stjórn Þóris Hergeirssonar. Þau hafa nú bæði sagt skilið við norska handboltalandsliðið. EPA-EFE/Bo Amstrup

Þórir Hergeirsson var heiðraður samtímis á tveimur verðlaunahófum í gærkvöld, á Íslandi og í Noregi. Ein af stjörnunum sem hann þjálfaði svo lengi í norska handboltalandsliðinu, Stine Oftedal Dahmke, þakkaði Þóri fyrir allt í verðlaunaræðu.

Þórir var valinn þjálfari ársins á Íslandi af Samtökum íþróttafréttamanna með yfirburðum, eftir að hafa gert kvennalandslið Noregs að Ólympíumeisturum og svo einnig Evrópumeisturum á sínu síðasta stórmóti með liðinu. 

Hann þakkaði fyrir sig í myndbandskveðju sem sýnd var í Hörpu, enda gat hann ekki verið á tveimur stöðum á sama tíma.

Þórir var nefnilega einnig valinn fram yfir alla þjálfara, í öllum greinum, í Noregi en ásamt honum voru tilnefnd þau Stian Grimseth, Kjetil Knutsen, Siegfried Mazet/Egil Kristiansen, Arild Monsen/Eirik Myhr Nossum og Espen Rooth. 

Grimseth hjálpaði Solfrid Koanda að vinna ólympíugull í lyftingum, Knutsen er þjálfari fótboltaliðs Bodö/Glimt sem átti frábært ár, og Rooth þjálfar soninn Markus Rooth sem tryggði Noregi fyrsta ólympíugullið í tugþraut síðan árið 1920.

„Stórt að hafa fengið þessi verðlaun“

Þessi afrek dugðu þó ekki til að verða þjálfari ársins því þau verðlaun féllu í skaut Þóris:

„Hvað get ég sagt? Í fyrsta lagi er ég auðmjúkur yfir að hafa verið valinn. Kollegar mínir sem voru tilnefndir eru ótrúlega hæfileikaríkir. Það er stórt að hafa fengið þessi verðlaun,“ sagði Þórir á hófinu í Noregi, svipað og í ræðu hans sem sýnd var í Hörpu. Hann þakkaði einnig þjálfarateymi sínu og leikmönnum, og konu sinni Kirsten sérstaklega.

Stelpurnar hans Þóris fengu líka verðlaun sem lið ársins í Noregi, og nýtti Stine Oftedal Dahmke þá tækifærið til að þakka Þóri fyrir allt og sagði:

„Ég held að ég hafi aldrei hitt, og muni aldrei hitta, nokkurn sem að byggir upp lið eins og hann,“ en Oftedal Dahmke var lengi fyrirliði handboltaliðsins, áður en hún lagði skóna á hilluna eftir Ólympíuleikana í sumar.

Þórir endaði á að segja að landsliðið ætti áfram eftir að skína skært þó að hans og Oftedal Dahmke nyti ekki lengur við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×