Erlent

Dómsuppkvaðning í þöggunarmáli viku fyrir inn­setningu

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Trump við réttarhöldin í New York í maí. 
Trump við réttarhöldin í New York í maí.  AP

Dómari í New York hefur fyrirskipað dagsetningu fyrir dómsuppkvaðningu í hinu svokallaða þöggunarmáli Donalds Trump. Hún er fyrirhuguð á föstudaginn, rúmri viku fyrir innsetningarathöfn Trump. 

Juan Merchan dómari, sem stýrði réttarhöldum í máli Donalds Trump tilkynnti í gær að dómsuppkvaðning í málinu fari fram þann 10. janúar, rúmri viku áður en Trump snýr aftur í Hvíta húsið. 

Í ákvörðun Merchan kemur fram að dómurinn feli að öllum líkindum ekki í sér fangelsisvist þar sem saksóknarar meti slíka refsingu ekki framkvæmanlega. AP fjallar um málið. 

Kviðdómur í New York sakfelldi Donald Trump í maí fyrir að falsa skjöl til þess að hylma yfir greiðslur til klámstjörnu fyrir forsetakosningarnar árið 2016. Dómsuppkvaðning átti upprunalega að fara fram í júlí en var frestað tvisvar sinnum að beiðni lögmanna Trump.

Eftir sigur Trump í forsetakosningunum frestaði Merchan dómsuppkvaðningunni um ótilgreindan tíma. Lögmenn hans fóru þá fram á að sakfelling Trump yrði felld niður á þeim forsendum að hún myndi fela í sér truflanir á forsetaembættinu sem færi gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna. Dómarinn féllst ekki á þá kröfu og sagði að búist væri við að Trump yrði viðstaddur dómsuppkvaðninguna. 

Fram kom í ákvörðun Merchan að tækast væri að veita Trump lausn, án fangelsis, sektar, skilorðs eða annarrar refsingar. Líklega yrði dæmt á þann veg, þá til þess eins að loka málinu. 

Þrátt fyrir það væri dómsuppkvaðningin til marks um að Bandaríkin væru í þann mund að setja dæmdan glæpamann inn í forsetaembættið. 


Tengdar fréttir

Annarri ákærunni formlega vísað frá

Dómari hefur samþykkt að vísa frá ákæru á hendur Donald Trump, fyrrverandi og verðandi forseta Bandaríkjanna, vegna meintra ólögmætra tilrauna hans til að snúa við úrslitum forsetakosninganna 2020, sem hann tapaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×