Aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins Jón Frímann Jónsson skrifar 23. desember 2024 07:30 Hægri menn og öfga-hægri menn á Íslandi eru núna skjálfandi hræddir (frétt mbl.is) um að einokunin sem þeir hafa núna yfir viðskiptum Íslendinga verði brotin. Sigmundur Davíð, formaður öfga-hægri flokksins Miðflokksins lét Utanríkisráðherra sinn senda ólögmætt bréf (vefsíða stjórnarráðsins) til Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins árið 2015 um slit á aðildarviðræðunum Íslands og Evrópusambandsins. Alþingi árið 2015 samþykkti ekki þessa breytingu, ákvörðun sem Alþingi tekur getur aðeins verið breytt samkvæmt vilja Alþingis samkvæmt stjórnarskrá Íslands. Um þetta var fjallað í fréttum árið 2015, hérna er frétt vísir.is um þetta mál frá árinu 2015. Takið eftir því hvernig Gunnar B. Sveinsson og Sigmundur Davíð lugu að Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um að þetta mál hefði verið rætt á Alþingi Íslendinga, eitthvað sem var aldrei gert. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins var auðvitað að fullu upplýst um raunverulega stöðu mála en er bundin samkvæmt lögum og reglum Evrópusambandsins að virða óskir ríkja sem sækja um aðild að Evrópusambandinu ef breytingar verða á stöðu umsóknar hjá ríkinu, sem í þessu tilfelli var Ísland. Það er skiljanlegt að ný ríkisstjórn Íslands vilji setja ákvörðun um áframhald aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins í kosningu hjá almenningi. Enda hefur upplýsingaóreiða frá hægri um Evrópusambandið verið stórt vandamál á Íslandi. Þrátt fyrir þá augljósu staðreynd að það sem þeir tala fyrir og hafa á Íslandi virkar ekki. Hvorki íslenska krónan eða efnahagur Íslands eins og hann er í dag virka og hefur í reynd aldrei virkað. Íslendingar eru bara vanir að hafa efnahag sem virkar ekki og gjaldmiðil sem rýrnar stöðugt. Það þarf að komast úr þannig ástandi til þess að átta sig á því að þetta er ekki í lagi. Sé vefsíða Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðildarviðræður Íslands (vefsíða Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins) að Evrópusambandinu skoðuð. Þá sést að það eru ekki svo margir kaflar sem á eftir að klára áður en hægt er að fara í það verkefni að skrifa aðildar sáttmála Íslands að Evrópusambandinu. Það er nauðsynlegt að nefna það að aðildar sáttmáli Íslands að Evrópusambandinu hefur lagalegt gildi og verður ekki breytt eftir að hann verið samþykktur að öllum aðildarríkjum Evrópusambandsins og þjóðþingum þeirra ríkja. Vilji Íslendingar breyta aðildar sáttmála sínum eftir inngöngu, þá þarf að semja um það sérstaklega og endurtaka þann hluta sem varðar samþykki allra aðildarríkja Evrópusambandsins fyrir breytingunni. Þess vegna er þetta aldrei eða mjög sjaldan gert hjá Evrópusambandinu. Þessar breytingar eru einnig oftast, af hagkvæmnisástæðum, settar í næsta aðildar sáttmála eftir þörfum. Það að draga kosningu um aðildarviðræður til ársins 2027 eru stórkostleg mistök. Þessi kosning þarf að fara fram eins fljótt og hægt er, ekki seinna en vorið 2025 og alls ekki síðar en vorið 2026. Þar sem núverandi ríkisstjórn Íslands þarf helst að klára aðildarviðræður og kosningu um aðildar samninginn á kjörtímabilinu. Það er einnig ljóst að það mun taka talsverðan tíma að laga efnahag Íslands og vinda ofan af verðtryggðum lánum þannig að það gangi upp. Þar sem ekki er hægt að hafa verðtryggð lán með þeim efnahagslegu kröfum sem Evrópusambandið setur aðildarríkjum sínum. Þessar kröfur voru settar eftir efnahags hrunið árið 2008 og er ætlað að halda efnahag aðildarríkja Evrópusambandsins stöðugum og eins öruggum og hægt er. Það er ljóst að andstæðingar Evrópusambandsins á Íslandi munu fara í mikinn og dýran hræðslu áróður gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þetta hefur gerst áður en þessi hræðslu áróður er ekki og hefur aldrei verið í samræmi við raunveruleikann. Raunveruleika sem íslendingar finna mjög vel í sínu daglega lífi og efnahag. Endalausar hækkanir á matvöru, háir tollar og sendinga gjöld til Íslands á sumum vörum, ef ekki tollar, þá ýmis önnur gjöld sem mætti líta á sem ígildi tolla. Ónýta vegi vegna niðurskurðar á uppbyggingu innviða á Íslandi. Bændur Íslands lifa í fátækt vegna þess að landbúnaðarstefna Íslands er slæmt og er örugglega verri en ég hef þekkingu á. Síðan bætist við einokun á matvælaframleiðslu, sem var tímabundið stöðvuð með dómi Héraðsdóms en breytir ekki þeirri staðreynd að öll framleiðsla á mjólkurvörum er undir einokun samkvæmt lögum. Þetta er víðar svona í íslensku efnahagslífi og er ástæða þess að íslendingar borga of mikið fyrir allt saman í dag. Aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins verða samningaviðræður og hvernig framkvæmd laga Evrópusambandsins fer fram. Það sem útaf stendur, þar sem EES samningurinn kemur með flest öll lög Evrópusambandsins nú þegar inn í íslenskt lagasafn eftir samþykkt á Alþingi íslendinga. Það sem eftir stendur eru kaflar af laga söfn Evrópusambandsins þar sem semja þarf um framkvæmd og athugun á því hvaða undanþágur eða aðlögun þarf að framkvæma ef einhver er. Það skiptir máli að hræðsluáróðurinn gegn Evrópusambandinu sé vísað frá í umræðunni og staðreyndir fengnar fram. Síðan þarf ríkisstjórn Íslands að leggja fram ítarlega efnahagsáætlun um framkvæmd og tíma fyrir upptöku evrunnar tímanlega. Það tekur að lágmarki tvö ár að taka upp evruna, þar sem það er krafan á föstu gengi í gegnum ERM-II fast-genginu áður en hægt verður að taka upp evruna, svo lengi sem kröfur um verðbólgu og vexti eru einnig uppfyllt. Auk lagalegra skilyrða og annara atriða. Höfundur er borgaralegur vísindamaður, búsettur í Danmörku og Evrópusambandinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Frímann Jónsson Mest lesið Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson skrifar Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson skrifar Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar