Að ánetjast eldri konum Lestrarklefinn 6. desember 2024 10:30 Eva Rún Snorradóttir á bók í jólabókaflóðinu í ár. Rebekka Sif Stefánsdóttir skrifar um bækur á menningarvefnum Lestrarklefinn. Hún fjallar hér um nýjustu bók Evu Rúnar Snorradóttur, Eldri konur.
Ég hef verið áðdáandi Evu Rúnar núna í þónokkur ár. Ljóðabækurnar hennar og örsagnasöfn hafa verið í miklu uppáhaldi hjá mér og þá sérstaklega ljóðabókin Fræ sem frjóvga myrkrið sem kom út árið 2018. Nú hefur hún skrifað sína fyrstu skáldsögu og ber hún þann skemmtilega titil Eldri konur. Hér segir frá ónefndri konu sem fjallar um allar þær konur sem hafa heltekið huga hennar í gegnum lífið. Og þær eiga það allar sameiginlegt að vera töluvert eldri en hún. Rebekka Sif Stefánsdóttir fjallar um bækur á menningarvefnum Lestrarklefinn.is. Að steypa sér í glötun Lesandi kynnist breyskri aðalsögupersónu bókarinnar í gegnum frásagnir hennar af fjölbreyttum og rómantíseruðum konum sem ganga inn og út úr lífi hennar. Oft dáist konan að þeim úr fjarlægð, uppfull af draumórum um ástarævintýri þeirra saman sem sjaldan raungerast. Konan segist alltaf hafa „verið rótlaus og vannærð.“ (bls. 7) Lífið verður blómlegra og meira spennandi með áfengi, en það sem gerir hana alveg hömlulausa eru eldri konur: „Efnið mitt, það sem gerir mig heila, fyllir mig krafti, lífi fær mig til að engjast um af fráhvörfum og þráhyggju, lemja, slá, fær mig til að steypa mér í glötun, eru eldri konur.“ (bls. 7) Barnæska hennar var erfið, hún flakkaði á milli félagsíbúða með Hildi, móðursystur sinni, og upplifði mikið stjórnleysi þar sem hún gat aldrei kallað Hildi mömmu og Hildur gat aldrei komið henni í alvöru móðurstað. Hún var inn og út úr fangelsi og djammaði óhóflega. Utan frá virðist söguhetjan þó frekar heilsteypt, hún flakkar á milli ólíkra vinna, menntar sig, fer í listaháskólann og útvegar sér kærustur sem eru henni trúar. Það breytir þó ekki kjarna hennar sem er óstöðugur. Hér er hægt að lesa umfjöllunina í heild sinni. Fleiri bókadóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Bókmenntir Bókaútgáfa Jól Menning Mest lesið „Meðan ég er ánægð skiptir álit annarra engu“ Tíska og hönnun Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Lífið Hugljúft en stutt gaman Gagnrýni Klæddist fimm kílóum af mannahárum Tíska og hönnun Óþekkjanleg á Óskarnum Tíska og hönnun Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Lífið Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Lífið Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Lífið Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Tíska og hönnun Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? Gagnrýni Fleiri fréttir Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira