Innlent

Ekkert verður af verk­falli í Hafnar­firði

Árni Sæberg skrifar
Börnin í Hafnarfirði geta mætt í leikskólann á fimmtudaginn eftir allt saman.
Börnin í Hafnarfirði geta mætt í leikskólann á fimmtudaginn eftir allt saman. Vísir/Vilhelm

Stéttarfélagið Hlíf og Hafnarfjarðarbær hafa skrifað undir kjarasamning vegna félaga Hlífar í leikskólum bæjarins. Þannig hefur verkfalli sem hefði lamað starfsemi allra leikskóla bæjarins verið afstýrt.

Í tilkynningu á vef Hlífar segir að félagið telji samninginn vel ásættanlegan og að allflestum samningsmarkmiðum hafi verið náð. Mikilvægasta ákvæðið snúi að tryggingu undirbúningstíma leikskóla- og frístundaliða og stuðningsfulltrúa í leikskólum.

Samningurinn verði kynntur næstu daga. Atkvæðagreiðsla um samninginn hefjist um miðja viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×