Enski boltinn

Lineker hættir með Match of the Day eftir tíma­bilið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gary Lineker er einn þekktasti sjónvarpsmaður Bretlands. Áður var hann einn bestu framherjum heims.
Gary Lineker er einn þekktasti sjónvarpsmaður Bretlands. Áður var hann einn bestu framherjum heims. getty/Robbie Jay Barratt

Eftir að hafa stýrt Match of the Day á BBC frá 1999 hættir Gary Lineker með þáttinn vinsæla eftir tímabilið.

Búist er við því að Lineker yfirgefi BBC svo endanlega eftir heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó 2026.

Samningur Linekers átti að renna út eftir tímabilið og hann var tilbúinn að halda áfram með Match of the Day en samkvæmt breskum fjölmiðlum fékk hann ekki nýtt samningstilboð.

Lineker tók við Match of the Day af Des Lynam fyrir tímabilið 1999-2000. Hann verður búinn að stýra þættinum í 26 ár þegar hann hættir næsta vor.

Meðal þeirra sem þykja líkleg til að taka við stjórnartaumunum í Match of the Day af Lineker má nefna Mark Chapman, Gabby Logan og Alex Scott.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×