Joao Félix í stuði í stórsigri Chelsea 24. október 2024 18:36 Portúgalinn Joao Felix var öflugur í sigurleik Chelsea í Grikklandi í kvöld og skoraði tvívegis. Getty/Darren Walsh Chelsea vann 4-0 stórsigur á gríska félaginu Panathinaikos í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta í kvöld. Panathinaikos var með íslenska landsliðsmanninn Sverrir Inga Ingason á bekknum og liðið fékk á sig fjögur mörk. Þetta var kvöld Portúgalans Joao Félix sem átti stórleik. Chelsea hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar og markatala liðsins er 8-3. Það hefur því ekki vantað mörkin í leiki liðsins til þessa. Joao Félix skoraði tvö mörk og fiskaði einnig víti sem Christopher Nkunku skoraði úr fjórða markið. Athygli vakti að Portúgalinn fékk ekki að tryggja sér þrennuna þrátt fyrr að hafa fengið víti þremur mörkum yfir. Úkraínumaðurinn Mykhaylo Mudryk var líka öflugur. Hann skoraði annað markið á 49. mínútu með skalla en lagði síðan upp bæði mörk Joao Félix. Grikkirnir minnkuðu muninn með marki Facundo Pellistri á 69. mínútu leiksins. Sambandsdeild Evrópu
Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
Leik lokið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik Körfubolti
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
Leik lokið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik Körfubolti