Alþingiskosningar 2024, fer allt á versta eða besta veg? Reynir Böðvarsson skrifar 15. október 2024 16:01 Ríkisstjórnin er fallin og komin tími til, atburðarásin síðan Katrín Jakobsdóttir yfirgaf stjórnmálin hefur ekki verið traustvekjandi fyrir þetta ríkisstjórnarsamstarf. Það hefur ekkert verið til staðar eftir brotthvarf hennar sem hefur getað haldið saman þessari ríkisstjórn. Hún var óumdeilanlega sú eina persóna í íslenskum stjórnmálum sem hafði möguleika á að halda í tauma á slíku stjórnarsamstarfi, og henni tókst að halda þessu gangandi merkilega lengi. Bjarni hins vegar varð að gefast upp eftir bara nokkra mánuði í forsætisráðherrastól, annað sinn á ferli sínum sem hann þvingast til þess að gefa frá sér þennan stól eftir stuttan tíma. Sjálfstæðisflokkurinn er að mínu mati einfaldlega ekki stjórntækur, algjört öfga hægri æpir innan úr flokknum í hvert sinn sem eitthvað gagnlegt fyrir almenning eða umhverfi er til umræðu og þarf meðhöndlun ríkisstjórnar. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur sérhagsmunaafla, flokkur sem gerir það sem fjármagnseigendur boða. Flokkurinn þykist hafa stefnu, sjálfstæðisstefnuna sem er í raun innantómt flosker sem engin skilur, en flokkurinn er í rauninni bara verkfæri fjármagnseigenda á Íslandi til þess að viðhalda sínum áhrifum. Ekkert annað! Það er með ólíkindum að fólk sjái þetta gerspillta verkfæri auðmanna með þeim augum sem það hefur sýnt í kosningum. Það sorglega er að fylgitungl flokksins, Framsóknarflokkurinn er alltaf til staðar, og framfylgir stefnu Sjálfstæðisflokksins í þessum nýfrjálshyggju dansi hvar og hvenær sem er. Framsóknarflokkurinn hefur ekki haft aðra stefnu en að sitja í ríkisstjórn í áratugi. Báðir þessir flokkar hafa takmarkaðan áhuga loftslagsvandanum nema sem hugsanlegs viðskiptatækifæri. Viðreisn kan engan dans annan en nýfrjálshyggju dansinn, hefur aldrei lært gömlu dansana sem ganga fyrst og fremst út á að dansa saman, tvö og tvö og í hóp, þar sem mikilvægt er að taka tillit til allra á dansgólfinu. Viðreisn kan enga svoleiðis dansa og er eins og hluti af Sjálfstæðisflokknum öfga hægriflokkur þar sem allt af virði mælist einvörðungu í peningum. Miðflokkurinn kan bara einn dans og það er að dansa eftir pípu formannsins, ótrúlega einhæfur og leiðinlegur dans sem kallast skynsemishyggju dansinn. Sporin veit enginn fyrir fram eða skilja en dansinn fylgir einfaldlega þeim hljóðum sem koma úr pípu formannsins hverju sinni og endar oftast með öngþveiti á gólfinu. Flokkur fólksins er furðulegt fyrirbæri í kring um eina konu sem kan líka að spila á pípu, vissulega mjög ósamanhangandi en einfalda tóna, næstum alltaf þá sömu og í sama dúr. Það sem er sameiginlegt með kjósendum þessara flokka er að þeir vilja dansa eftir pípu einhvers. Báðir þessir flokkar gefa lítið fyrir loftlagsvandamálin. Píratar eru mikilvægur flokkur í íslenskum stjórnmálum, hafa gert mikið gagn og þurfa nauðsynlega að vera áfram til staðar á Alþingi. Það er ekki að ástæðulausu að margir Sjálfstæðismenn láti þá fara í taugarnar á sér, þeim hefur tekist ótrúlega oft og vel að svipta hulunni af spillingunni í Sjálfstæðisflokknum og meðvirkni embættismanna kerfisins gagnvart þessari spillingu og því mikilvægt að því starfi verði haldið áfram. Píratar eru flokkur mannréttinda og gerir sér vel grein fyrir hversu mikilvægt það er að koma böndum á hlýnun jarðar. Hvort Vinstri hreyfingin - grænt framboð nái inn mönnum á þing í næstu kosningum er ekki víst og er það náttúrulega vegna þess að þau hafa haldið Sjálfstæðisflokknum við völd í sjö ár. Það er ekki auðvelt að fyrirgefa slíkt og gamlir kjósendur hugsa sig tvisvar um áður enn þeir gefa atkvæði sitt í slíka óvissuferð aftur enda ekki þörf á því því það eru aðrir valkostir til vinstri nú. Það væri þó slæmt því þarna er margt gott fólk með hjartað til vinstri, hafa góðan skilning á loftlagsvánni og verndun íslenskrar náttúru. Einnig er hætta á að mörg vinstri atkvæði tapist ef þau ná ekki inn á þing. Samfylkingin fer með himinskautum í skoðanakönnunum og er það vel eins og málin standa. Spurningin er bara, eru það hægrikratar sem eru að safnast saman þarna eða er um að ræða gamla sósíaldemókratískar hugsjónir um sterkt ríkisvald, jöfnuð, félagslega þjónustu og þokkalega skattheimtu til þess að fjármagna slíkt. Ég er ekki viss, Nýfrjálshyggjan hefur víða farið illa með sósíaldemokratiska flokka sem hafa þar af leiðandi mist tengsl við verkalýðshreyfingu og venjulegt vinnandi fólk. Það er mikilvægt að Sósíalistaflokkurinn nái mönnum inn á þing í þessum kosningum, helst mörgum. Það er eina almennilega tryggingin fyrir því að alvöru vinstri sjónarmið komi þar fram og þar með nánast eini möguleiki til þess að alvöru stefnubreyting eigi sér stað sem varðar velferð og almannahag, beygt af vegi nýfrjálshyggjunnar, aftur inn á braut samfélagslegrar uppbyggingar. Sósíalistaflokkurinn er eini flokkurinn sem má treysta til þess að beina spjótum sínum gegn misskiptingunni í samfélaginu á markvissan hátt og berjast fyrir umbætum fyrir þá sem hafa orðið undir í darraðardansi nýfrjálshyggjunnar á síðustu áratugum. Sósíalistaflokkurinn hefur góð tengsl við verkalýðshreyfinguna og saman eru þessi öfl grundvöllur þess að nýtt framfaraskeið geti hafist aftur á Íslandi þar sem allir eru með og engin skilin eftir, hvorki leigjendur né láglaunafólk, nýtt tímabil framfara og aukinna lífsgæða fyrir alla til framtíðar án þess að ganga á þolmörk þess lífríkis sem við manneskjur erum hluti af en ekki drottnari yfir. Sósíalistaflokkurinn er friðarflokkur, gegn hernaðarbandalögum og hermangi, gagnrýninn á þá einsleitu umræðu um alþjóðamál sem Bandaríkin hafa óáreitt fengið að stjórna síðustu áratugi. Tvær gjörólíkar sviðsmyndir eru sýnilegar eftir næstu kosningar, ein þar sem Sjálfstæðisflokkurinn ásamt Miðflokknum og Viðreisn fara með aðalhlutverk og nýfrjálshyggjubrjálæðið heldur áfram sem endar líklega með algjöru hruni þjóðfélagssáttmálans. Hin sviðsmyndin er þar sem vinstrið nær afgerandi ítökum og farið verði inn á sjálfbæra samfélagsþróun þar sem allir í þjóðfélaginu eru með. Til þess að svo geti orðið þarf Sósíalistaflokkurinn að fá góða kosningu, fjölda þingsæta sem nægir til að halda Samfylkingunni VG og Pírötum við efnið eins og vinstriflokkar til vinstri við sósíalista flokkana í Skandinavíu gerðu þegar Norrænu velferðarþjóðfélögin voru og hétu. Höfundur er jarðskjálftafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reynir Böðvarsson Alþingiskosningar 2024 Alþingi Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Skoðun: Alþingiskosningar 2024 Mest lesið Kerfið er brotið af því þú þolir það þannig Anna Bergþórsdóttir Skoðun Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun Davíð kvaddur Ámundi Loftsson Skoðun Lygin um að á Íslandi sé nauðgunarmenning Huginn Þór Grétarsson Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson Skoðun Kópavogsleiðin er merkilegt fyrirbæri Tinna Gunnur Bjarnadóttir Skoðun Heppni hjúkrunarfræðingurinn sem á að græða helling Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Til hamingju, Kópavogsbúar – þið eigið von á góðu! Elísabet Sveinsdóttir Skoðun Þorgerður Katrín treystir ekki þjóðinni Hjörvar Sigurðsson Skoðun Sameign þjóðarinnar — eða stærsta tilfærsla auðlinda í sögu Íslands? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Kerfið er brotið af því þú þolir það þannig Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar Skoðun Skerðing í Kópavogi Stefán Vilbergsson skrifar Skoðun Sigurvíma Trump Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Hesturinn í umferðinni Ólafur Gestur Arnalds skrifar Skoðun Hvað er eldsneytið þitt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er ESB „hnignunarbandalag“? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Heppni hjúkrunarfræðingurinn sem á að græða helling Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Davíð kvaddur Ámundi Loftsson skrifar Skoðun Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Kennsla í skugga skráninga Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Hvað hefur oddviti Framsóknar í Kópavogi að fela? Theodóra Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Loftslagspólitík sem gagnast bændum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Þorgerður Katrín treystir ekki þjóðinni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Kaþólska kirkjan og uppbygging íslensks heilbrigðiskerfis Árni Már Jensson skrifar Skoðun Kópavogsleiðin er merkilegt fyrirbæri Tinna Gunnur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ófrjósemi og andleg líðan Ástdís Pálsdóttir Bang skrifar Skoðun Til hamingju, Kópavogsbúar – þið eigið von á góðu! Elísabet Sveinsdóttir skrifar Skoðun Við erum að taka hlutverkin frá eldra fólki Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Að byggja upp samfélagslegt umboð í afskekktum samfélögum: Hvernig ábyrgt fiskeldi styrkir Vestfirðina Daníel Jakobsson skrifar Skoðun Hvernig verjum við Ísland? Finnur Beck skrifar Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Reikniskekkja Viðreisnar í Kópavogi Orri Vignir Hlöðversson skrifar Skoðun Betri svefn – Betra líf Erla Björnsdóttir skrifar Skoðun Í Evrópusambandinu eru réttindi verkafólks á forsendum markaðarins Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Þjóðaröryggishætta Nýja Landspítalans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Lygin um að á Íslandi sé nauðgunarmenning Huginn Þór Grétarsson skrifar Skoðun Um lýðfullveldi Aðalsteinn Júlíus Magnússn skrifar Skoðun Ótvíræður ávinningur af innleiðingu farsældarlaganna Óskar Dýrmundur Ólafsson skrifar Skoðun Fjármagnið ásælist heilsugæsluna Steinunn Bragadóttir skrifar Sjá meira
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun
Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar
Skoðun Að byggja upp samfélagslegt umboð í afskekktum samfélögum: Hvernig ábyrgt fiskeldi styrkir Vestfirðina Daníel Jakobsson skrifar
Skoðun Í Evrópusambandinu eru réttindi verkafólks á forsendum markaðarins Ágúst Valves Jóhannesson skrifar
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun