Lífið

Stjörnulífið: „Virkilega slæm vika fyrir all my haters“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnulífið er vikulegur liður á Vísi.
Stjörnulífið er vikulegur liður á Vísi.

Fallegt haustveður, stórtónleikar Stjórnarinnar, barnalán og ljúfar samverustundir einkenndu liðna viku hjá stjörnum landins. Elísabet Gunnars byrjaði haustið á miðaldra mömmufríi á meðan fyrirsætan Birta Abiba segist fagna sumarlokunum í New York.

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.


Seiðandi sumarlok

Fyrirsætan Birta Abiba fagnar sumarlokunum með seiðandi myndum.

Októberfest

Móeiður Lárusdóttir, athafnakona og eiginkona knattspyrnumannsins Harðar Björgvins Magnússonar, klæddi sig upp í dirndl og skálaði í bjór á Október fest um helgina. 

Lokatónleikar ársins

Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir kom fram á sínum síðustu tónleikum á þessu ári og er komin í kærkomið frí.

Alvöru draumur

Auðunn Blöndal og Steindi Jr. hafa lokið tökum á nýrri þáttaröð af Draumnum sem birtist á skjám landsmanna í vetur.

Flott í appelsínugulu

Tónlistarfólkið Salka Sól Eyfeld og Daníel Ágúst voru flott í appelsínugulu helgina.

Líður eins og Adam

Einkaþjálfarinn Gummi Emil Hercules, segist líða vel án klæða. „Náttúran hringdi og ég svaraði, hún sagði mér að ég þyrfti ekki föt, hvorki í hita né kulda.“

Stórtónleikar Stjórnarinnar

Erna Hrund Hermannsdóttir áhrifavaldur og vörumerkjastjóri skemmti sér á stórtónleikum Stjórnarinnar um helgina.

Tónleikar í Manchester

Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, eða GDRN, kom fram á tónleikum í Manchester í vikunni.

Prinsinn mættur

Sandra Björg Helgadóttir, þjálfari og áhrifavaldur, og Hilmar Arnarsson eignuðust frumburð sinn í vikunni.

Salat og franskar

Sunneva Einars raunveruleikastjarna og áhrifavaldur fékk sér salat og franskar í London.

Stjörnustælar

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason vill vera með stjörnustæla.

Ný stuttmynd

Tónlistarkonan Bríet Isis gaf út stuttmynd á dögunum ásamt tónlitarmanninum Birni.

Gísli Marteinn til í alvörunni

Listakonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir var í viðtali í Vikunni og í vikunni hjá Gísla Marteini síðastliðið föstudagskvöld. Alvöru vika.

„Virkilega slæm vika fyrir all my haters. Bjartur fékk (loksins, og í pokemon náttbuxunum) að hitta GM og við komumst að því að jú, hann er til í alvörunni,“ skrifaði Þórdís og birti skemmtilegar myndir frá helginni.

Miðaldra mömmufrí 

Elísabet Gunnarsdóttir fór í fullkomið mömmufrí í Kerlingafjöllum ásamt vinkonu sinni, Rakel Jónsdóttur.

Gummi kíró nú stílisti

Gummi kíró bætir stílista-titlinum á ferilskrána.

Þátturinn kominn í loftið

Þátturinn af sápuóperunni Glæstum vonum þar sem Jökull Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar Kaleo, fer með gestahlutverk, var sýndur í Bandaríkjunum í vikunni

Guðmóðir helgarinnar

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra fékk þann heiður að vera guðmóður bróðurdóttur sinnar um helgina. Hún segist ekki sjá sólina fyrir henni. 

Kominn eftir langa bið

Áhrifavaldurinn Fanney Dóra Veigarsdóttir og unnustinn hennar Aron Ólafsson eignuðust sitt annað barn í vikunni. Hún segir drenginn hafa látið bíða eftir sér.

Þrjú ár af ást

Tanja Ýr Ástþórsdóttir, fegurðardrottning og áhrifavaldur, fagnaði þriggja ára sambandsafmæli hennar og kærastans Ryan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×