Innlent

Bíða gagna og tjá sig lítið um rann­sóknina á meðan

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Eldri hjón fundust látin á heimili sínu í Neskaupstað þann 22. ágúst síðastliðinn. Einn er í haldi lögreglu.
Eldri hjón fundust látin á heimili sínu í Neskaupstað þann 22. ágúst síðastliðinn. Einn er í haldi lögreglu. Vísir/Vilhelm

Rannsókn á andláti hjóna í Neskaupstað í ágúst er á viðkvæmu stigi en miðar vel, að sögn yfirlögregluþjóns. Lögregla bíður þess að fá niðurstöður rannsókna á rafrænum gögnum og lífsýnum. 

„Það er verið að bíða eftir gögnum sem eru til rannsóknar annarsstaðar,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi. Þar sé meðal annars um að ræða lífsýni og rafræn gögn.

Krufningu á líkum hjónanna sé lokið, en lögregla telji ekki tímabært að greina frá niðurstöðum hennar. 

„Það er bara einn liður í rannsókn málsins og svo er verið að bíða eftir þessum og öðrum gögnum. Framhaldið verður metið í kjölfar þess. Rannsókninni miðar vel,“ segir Kristján. 

Fátt hafi þó breyst frá því lögregla gaf út fréttatilkynningu þann 6. september, þar sem greint var frá því að hinn grunaði hefði verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald.

„Rannsóknin er á viðkvæmu stigi og þess vegna er ekki tímabært fyrir lögreglu að segja mikið meira en nákvæmlega þetta.“

Veistu meira um málið? Fréttastofa tekur við ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.


Tengdar fréttir

Í gæsluvarðhaldi þangað til í nóvember

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um áframhaldandi gæsluvarðhald mannsins sem er grunaður um að hafa orðið hjónum að bana í Neskaupstað í ágúst.

Fallist á geðrannsókn á hinum grunaða

Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem er grunaður um að hafa orðið hjónum að bana í Neskaupstað í síðustu viku. Lögreglan gerði einnig kröfu um geðrannsókn á hinum grunaða en fallist var á þá kröfu.

Hinn grunaði ógæfumaður sem íbúar höfðu áhyggjur af

Tengsl hins grunaða við hjón á áttræðisaldri sem fundust látin í Neskaupstað á fimmtudag, voru hvorki mikil né djúp eftir því sem lögregla kemst næst þótt enn sé unnið að því að upplýsa um þann þátt málsins. Niðurstöður krufninga munu liggja fyrir fljótlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×