Viðskipti innlent

Ráðin markaðs­stjóri Sensa

Atli Ísleifsson skrifar
Eydís Eyland.
Eydís Eyland. Sensa

Eydís Eyland hefur verið ráðin markaðsstjóri Sensa.

Í tilkynningu segir að hún sé með B.Sc. í markaðs- og alþjóðaviðskiptum og M.Sc. í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands. 

„Eydís starfaði áður sem markaðsstjóri OK og þar áður hjá Promennt og Verkefnalausnum en einnig kenndi Eydís verkefnastjórnun hjá Promennt. Fram að því starfaði hún sem sérfræðingur á markaðssviði Valitor og þar áður hjá Viðskiptablaðinu,“ segir í tilkynningunni. 

Sensa er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í fjölbreyttum lausnum í upplýsingatækni. Sensa er í eigu norska upplýsingatæknifyrirtækisins Crayon Group.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×