Fótbolti

Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Erling Braut Haaland og Gabriel Magalhaes eru ekki beint perluvinir.
Erling Braut Haaland og Gabriel Magalhaes eru ekki beint perluvinir. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images

Englandsmeistarar Manchester City tóku á móti Arsenal í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Leiknum lauk með dramatísku 2-2 jafntefli þar sem John Stones reyndist hetja heimamanna.

Norska markamaskínan Erling Braut Haaland kom Manchester City yfir með marki strax á níundu mínútu leiksins áður en mörk frá Riccardo Calafiori og Gabriel Megalhaes á 22. og 46. mínútu snéru taflinu við fyrir Arsenal.

Þrátt fyrir að vera marki yfir fóru gestirnir í Arsenal inn í hálfleikinn í vandræðum því Leandro Trossard lét reka sig af velli með sitt annað gula spjald seint í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Dómurinn var vissulega umdeildur og verður líklega ræddur á kaffistofum landsins fram eftir vikunni.

Manni færri gerðu gestirnir í Arsenal vel og héldu Englandsmeisturunum í skefjum lengst af. Síðari hálfleikur fór að mestu fram í og við vítateig Arsenal, en lengi vel leit út fyrir að Skytturnar myndu halda út. 

Það var ekki fyrr en á áttundu mínútu uppbótartíma að heimamönnum tókst loksins að finna jöfnunarmarkið þegar varamaðurinn John Stones mokaði boltanum yfir línuna og tryggði City dramatískt jafntefli.

Eins og við var að búast brutust út mikil fagnaðarlæti á Etihad-vellinum þegar ljóst var að Stones væri að tryggja City stigið, og segja má að sumir hafi gengið lengra í fagnaðarlátunum en aðrir.

Þar á meðal má nefna áðurnefndan Erling Braut Haaland, sem brást við markinu með því að taka sprettinn og sækja boltann í netið. Í stað þess að hlaupa með boltann út á miðju til að freista þess að koma leiknum fyrr í gang og mögulega stela sigrinum ákvað Norðmaðurinn hins vegar að kasta boltanum í hnakkann á markaskoraranum Gabriel Megalhaes sem var augljóslega mjög súr eftir að Stones jafnaði metin.

Mbl.is birti myndband af mörkum leiksins og á myndbandinu, sem hægt er að horfa á með því að smella hér, má sjá þegar Haaland kastar boltanum í hnakkann á Gabriel. Á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, hafa margir velt því fyrir sér hvort verknaðurinn verðskuldi spjald, eða bann, en það er eitthvað sem enska knattspyrnusambandið þarf líklega að svara fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×