Það var húrrandi fjör þegar Húrra fagnaði áratugs afmæli.Hlynur Hólm
„Á stórafmælum er mikilvægt að fagna vel og það gerðum við svo sannarlega,“ segja Jón Davíð Davíðsson og Sindri Jensson eigendur Húrra. Tískuverslunin fagnaði tíu ára afmæli um helgina með pomp og prakt.
Herrafataverslunin Húrra Reykjavík opnaði þann 5. september 2014 og varð fljótt ein af vinsælustu fataverslunum miðbæjarins.
„Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þessum tíu árum en frá haustmánuðum 2014 hefur Húrra tekið vel á móti þúsundum ánægðra viðskiptavina.
Húrra opnaði í kjölfarið kvennaverslun haustið 2016 áður en þau sameinuðu verslanirnar og færðu sig um set yfir á Hverfisgötu 18 a. Sömuleiðis reka þau verslun á Keflavíkurflugvelli,“ segir í fréttatilkynningu og þar kemur sömuleiðis fram að fyrirtækið sé hvergi nærri hætt að þróast.
„Það eru fleiri spennandi hlutir í pípunum sem við hlökkum mikið til að deila með ykkur.“
Í tilefni af stórafmælinu var boðið til heljarinnar afmælispartýs í verslun þeirra að Hverfisgötu 18a á laugardaginn.
„Ölgerðin bauð upp á drykki og einnig var risastór afmælisterta í boði fyrir gesti. Daði Ómars spilaði ljúfa tóna og samstarfsfólk frá ýmsum merkjum sem Húrra selur kom að utan til að fagna með Húrra.
Eftir teitið var fyrst kvöldmatur á Baka Baka fyrir öll þau sem hafa nokkurn tíma starfað hjá versluninni og svo var förinni heitið í partý á næturklúbbinn Auto. Young Nazareth, Daði Ómars og Club Dub komu þar fram.
Það var mikið líf og fjör á klúbbnum og fólk skemmti sér konunglega.“
Hér má sjá vel valdar myndir frá kvöldinu:
Jón Davíð Davíðsson eigandi Húrra ásamt glæsilegum konum úr fjölskyldu hans.Hlynur HólmSindri Þórhallsson starfsmaður Húrra Reykjavík í góðum félagsskap.Hlynur HólmSindri Jenssen eigandi Húrra fagnaði með stæl á Auto.Hlynur HólmDaði Ómars og Aron Kristinn.Hlynur HólmEmbla Óðins og Ólafur Alexander á spjalli.Hlynur HólmStrákar í stuði á klúbbnum.Hlynur HólmÞað var mikil stemning í versluninni.Hlynur HólmMikael Harðarson, Arna Björk, Nadía Áróra og Sara Kamban.Hlynur HólmÍsak Ernir, Arnór Hermannsson og Sindri Þórhallsson.Hlynur HólmSkvísur á klúbbnum.Hlynur HólmArnór Hermannsson verslunarstjóri Húrra Reykjavík ásamt góðum vinum.Hlynur HólmKenneth frá Han Kjøbenhavn og Irena Sveinsdóttir.Hlynur HólmAnna María, Mikael Harðarsson og Nadía Áróra.Hlynur HólmSigurður Stefán, Arnór Hermansson , Melkorka Pitt og Alexander.Hlynur HólmKenneth frá Han Kjøbenhavn, Clara frá Opera Sport og Embla Óðinsdóttir.Hlynur HólmSkvísulæti á Auto!Hlynur HólmJón Davíð, Elías Guðmundsson og Sölvi Snær.Hlynur HólmFólk og fjör í Húrra á Hverfisgötu.Hlynur HólmSara Kamban og Arna Björk.Hlynur HólmSindri Jensson og Embla Óðinsdóttir.Hlynur HólmOfurskvísurnar Anna Lísa og Embla Óðins.Hlynur HólmSindri Jensson og fjölskylda glæsileg!Hlynur HólmEmbla Óðins skein skært með stjörnuljós og kampavín.Hlynur HólmEmbla Óðins í góðum gír.Hlynur HólmBjörn Þorláksson starfsmaður Húrra Reykjavík og Egill Ásgeirsson plötusnúður, jafnan þekktur sem DJ Spegill.Hlynur HólmSindri Jensson, Anna María Johansen Þorsteinsdóttir, Ísak Ernir og Linus frá Stone Island.Hlynur HólmMaría Thorvaldsdóttir, Arnór Hermansson og Tinna Jóhannsdóttir.Hlynur HólmMaja Mist og Sara Sigríður.Hlynur HólmLogi Pedro og Sigurður Stefán.Hlynur HólmSturlað stuð!Hlynur HólmEmbla Óðins með stóra Húrra afmælisköku.Hlynur HólmAron Kristinn rokkaði þessi sólgleraugu.Hlynur HólmAlexía Mist, fyrrum starfsmaður Húrra Reykjavík.Hlynur HólmStemning á BakaBaka.Hlynur HólmSigurbjörg Birta, Arndís Hjörleifs og Rósa Sigmarsdóttir.Hlynur HólmMímir Bjarki og Arna Björk.Hlynur HólmSebastian frá Won Hundred.Hlynur HólmGóð stund fyrir sjálfu!Hlynur HólmArnór Hermansson, Mikael Harðarsson og vinir.Hlynur HólmSverrir Ingibergs er alltaf með lúkkið á lás.Hlynur HólmAnna María og Freyr Elí Sveinbjörnsson.Hlynur Hólm