Rúmlega hundrað köfnuðu eða krömdust við flóttatilraun Samúel Karl Ólason skrifar 3. september 2024 11:22 Íbúar fylgjast með störfum öryggissveita við fangelsið. AP Yfirvöld í Austur-Kongó segja að minnst 129 fangar hafi látið lífið við að reyna að strjúka úr fangelsi í Kinshasa, höfuðborg landsins, á aðfaranótt sunnudags. Minnst 59 eru sagðir slasaðir og segjast yfirvöld hafa náð tökum á ástandinu.
Jacquemin Shabani, innanríkisráðherra, segir að 24 fangar hafi verið skotnir til bana af vörðum en flestir aðrir hefðu kafnað eða kramist í örtröðinni sem myndaðist þegar fangarnir reyndu að flýja, samkvæmt AP fréttaveitunni. Umrætt fangelsi er það stærsta í landinu en árið 2017 flúðu þaðan rúmlega fjögur þúsund fangar. Það er hannað til að hýsa um 1.500 fanga en talið er að rúmlega fjórtán þúsund menn hafi setið þar inni. Konum er einnig haldið í fangelsinu og Shabani hefur sagt að einhverjum konum hafi verið nauðgað, án þess þó að segja nánar frá því hve mörg fórnarlömbin voru. Íbúar í hverfinu þar sem fangelsið er segjast hafa vaknað við skothríð um kvöldið og fólk sem blaðamenn hafa rætt við segja að einhverjum hafi tekist að strjúka úr fangelsinu en það hefur ekki verið staðfest af yfirvöldum. Þess í stað hefur Reuters eftir embættismanni að engum hafi tekist að flýja. Þeir sem hafi reynt það hafi verið skotnir til bana.
Austur-Kongó Mest lesið Allir starfsmenn VG missa vinnuna seinna á árinu Innlent Enginn megi vera krýndur formaður Innlent „Þetta er einhver samfélagsmiðlasýki“ Innlent Vesturbæjarlaug lokað tímabundið vegna netbilunar Innlent Minntust Ásgeirs á Lífskviðunni Innlent Sleðar bannaðir á opnunartíma: „Leið eins og maður væri ekki velkominn“ Innlent Geitabóndi hannaði sitt eigið geitavesti Innlent Þýðir ekki að fara á taugum segir borgarstjóri og hyggur á endurkjör Innlent „Já, líklega hef ég verið undrabarn“ Innlent Þarf að taka fjölskylduna inn í myndina Innlent Fleiri fréttir Ísraelsmenn saka Hamas um brot á samkomulaginu Birta bráðabirgðaskýrslu vegna slyssins Sleppa fjórum gíslum gegn tvö hundruð föngum Tilnefning Hegseth staðfest með naumum meirihluta Einn látinn og nokkur hundruð þúsund heimili án rafmagns Marilyn Manson verður ekki ákærður Lýsir yfir neyðarástandi vegna átaka í Kólumbíu Sautján ára máli Amöndu Knox lýkur með sakfellingu Eldhaf við stóra olíuvinnslu í Rússlandi Af hverju er Trump reiður út í Panama? Greiddi konu sjö milljónir vegna ásakana Rauðar viðvaranir vegna Éowyn Merz boðar hertar aðgerðir í innflytjendamálum Írar undirbúa sig fyrir mesta óveður í manna minnum Lögbann sett á tilskipun Trumps Mikið reiðarslag fyrir réttindi bandarískra borgara 52 ár fyrir Southport-morðin Með áhyggjur af stöðu hagkerfisins Vara við hvirfilbyljum á Bretlandseyjum Ætla að senda tíu þúsund hermenn að landamærunum Fleiri Kimdátar væntanlegir í Kúrsk: „Það er bara áfram og áfram“ Sólarorka atkvæðameiri en kolabrennsla árið 2024 Trump ætlar að skattleggja Pútín svo hann hætti stríðsrekstri í Úkraínu Fulltrúi Ísraels í Eurovision lifði af hryðjuverkaárásirnar sjöunda október Enn einn gróðureldurinn ógnar Los Angeles Trump náðar eiturlyfjabarón huldunetsins Ný lög sögð leyfa giftingar allt að níu ára stúlkna Trump ósáttur við bón biskups um miskunn Söguleg snjókoma í suðurhluta Bandaríkjanna Verður forsætisráðherra Írlands á ný Sjá meira