Alisson Becker var með í ráðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. ágúst 2024 09:30 Giorgi Mamardashvili fagnar í leik með spænska félaginu Valencia. Getty/Aitor Alcalde Fyrsti leikmaðurinn sem Liverpool kaupir í stjóratíð Arne Slot er georgíski markvörðurinn Giorgi Mamardashvili.
Liverpool gekk í gær frá kaupunum á Mamardashvili frá spænska félaginu Valencia. Slot fær leikmanninn þó ekki til sín fyrir sumarið 2025. Mamardashvili mun spila áfram með Valencia á þessu tímabili. Mamardashvili kostar Liverpool 25 milljónir punda auk mögulega fjögurra milljóna til viðbótar í árangurstengdum greiðslum. Þetta gæti því endað í 29 milljónum punda eða 5,2 milljörðum króna. Hinn 23 ára gamli Mamardashvili hefur spilað með Valencia frá árinu 2021. Hann sló í gegn með georgíska landsliðinu á EM í Þýskalandi í sumar. Mamardashvili hefur spilað alla leiki Valencia undanfarin tvö tímabil og þykir mjög öflugur markvörður. Alisson Becker og Caoimhín Kelleher verða áfram markverðir Liverpool á þessari leiktíð en með kaupunum á Mamardashvili eru forráðamenn Liverpool að hugsa til framtíðar þegar annað hvort Alisson eða Kelleher yfirgefa félagið. Breska ríkisútvarpið hefur heimildir fyrir því að Alison hafi verið með í ráðum og styðji þessi kaup. Alison er þó aðeins 31 árs gamall sem er ekki gamalt fyrir markvörð. Samningur Brasilíumannsins rennur út sumarið 2027 þegar hann verður á 35. aldursári. View this post on Instagram A post shared by BBC SPORT (@bbcsport)
Enski boltinn Mest lesið Gunnar Nelson með ákall til ráðamanna: „Er hálf galið“ Sport Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið Fótbolti Hrósar Heimi og vill að hann hermi eftir Arsenal Fótbolti Cantona á Ströndum: Leikur í kvikmynd á Hólmavík Fótbolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti HM-leikir í Boston í uppnámi Fótbolti Truflaður af Aroni Pálmars i viðtali Sport West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni Enski boltinn Verstappen tikkar af golulistanum Formúla 1 Fleiri fréttir Segir ógeðslegt að gera grín að vítaklúðrum West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni City og Liverpool mætast í átta liða úrslitunum Fékk rúmlega þrettán milljóna króna sekt fyrir ummæli um dómara Liverpool og Man. Utd kvarta yfir hryllingi frá Grok Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Leeds í átta liða úrslit bikarsins í fyrsta sinn síðan 2003 Stuðningsmaður Newcastle tryggði óvæntasta sigur helgarinnar gegn Sunderland Guardiola ætlar að skella sér í frí „Á þriggja daga fresti líður mér öðruvísi“ Marmoush skaut City áfram í bikarnum í fjarveru Haaland Garnacho í aðalhlutverki í sigri á Hollywood-liðinu Skrifar undir nýjan samning við Liverpool Madueke og Eze afgreiddu C-deildarliðið Íhuga brottrekstur eftir minna en mánuð „Ég hef ekkert að sanna“ Vill breytingar og býður dómurum á æfingasvæðið Segir dómgæslu skaða titilvonir Man City Man United gerði hærra tilboð í Bale Arsenal-menn létu bíða eftir sér í 30 mínútur og 51 sekúndu Sjáðu mörkin sem fengu stuðningsmenn Tottenham til að fara í hálfleik Algjört hrun Spurs sem er stigi frá fallsæti Wirtz snúi aftur gegn Wolves „Aðeins eitt lið sem reyndi að spila fótbolta í dag“ Sjáðu hælspyrnuna sem særði City, Dana klára United og þrennu Joao Pedro Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Joao Pedro sá um svakalegan viðsnúning Skytturnar styrktu stöðu sína á toppnum City missti tvisvar niður forystu gegn Forest Sonur Fletchers í sex leikja bann fyrir hómófóbísk ummæli Sjá meira