Joao Pedro tryggði Brighton sigur á Manchester United, 2-1, í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði sigurmarkið þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.
Brighton er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina í ensku úrvalsdeildinni en United er með þrjú stig.
United var ívið sterkari aðilinn framan af leik en lenti undir á 32. mínútu þegar Danny Welbeck skoraði gegn sínum gömlu félögum. Hann potaði þá boltanum í netið eftir sendingu frá Kaoru Mitoma.
Brighton 1-0 yfir í hálfleik og byrjaði seinni hálfleikinn betur. En United jafnaði eftir klukkutíma. Amad Diallo skoraði þá með skoti sem fór af Paul van Hecke og í netið.
Tíu mínútum síðar hélt Alejandro Garnacho að hann hefði komið United yfir en markið var dæmt af þar sem boltinn fór af rangstæðum Joshua Zirkzee og í netið.
Þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma átti Simon Adingra fyrirgjöf á fjærstöng á óvaldaðan Pedro sem skallaði boltann í netið og tryggði Brighton stigin þrjú.