Ragnar Þór kennir Pawel eitt og annað í kennslufræðum Jakob Bjarnar skrifar 26. júlí 2024 10:51 Það er líkt og Viðskiptaráð hafi hent sprengju inn í alla umræðu um menntamál og námsmat. Ragnar Þór og Pawel eru meðal þeirra sem blanda sér í þá umræðu og þeir eru á öndverðum meiði. vísir/vilhelm Upp er sprottin athyglisverð ritdeila milli þeirra Ragnars Þórs Péturssonar kennara og Pawels Bartoszek, stærðfræðings og varaborgarfulltrúa um námsárangur og námsmat.
Víst er að menn verða seint á eitt sáttir um það hvernig staðið er að námsmati. Þannig hefur sprottið upp mikil umræða eftir að Viðskiptaráð kvartaði undan því að kennarar gerðust dómarar í eigin sök þegar námsárangur nemenda þeirra er annars vegar. Þannig væri ekki nokkur leið væri fyrir framhaldsskóla að taka inn nemendur að teknu tilliti til námsárangurs því það sem í eins huga væri B+ væri í annars C-. Þetta leiddi svo til þess að nemendur sætu ekki við sama borð þegar framhaldsskólar velja nemendur inn en þar er miðað við einkunnir. Ójafnræði væri augljóst, einhverjir væru að komast í skóla ómaklega og á kostnað annarra. Og það sem verra er, niðurstaðan úr prófum væri hernaðarleyndarmál sem fáir ef nokkrir hafi aðgang að. Pawel gagnrýnir leyndarhyggju sem um prófin ríkir Pawel ritaði grein sem hann birti á Vísi þar sem hann tekur að verulegu leyti undir með þeim sjónarmiðum sem Viðskiptaráð hafði boðað. Hann segir að örugglega geti verið snúið að búa til matsaðferðir í menntakerfinu sem fullkomið traust ríki um. „En traust til kerfa eykst oftar með auknu gegnsæi og með því þeir taka mikilvægar ákvarðanir um framtíð fólks séu ekki settir aðstæður sem orkað geta tvímælis. Traust eykst ekki endilega með því að þeir sem gagnrýni leyndina, ósamræmið og hættuna á hagsmunaárekstrum sem sakaðir um popúlisma, aðdróttanir og það að vera skipta sér af einhverju sem komi þeim ekki við. Því menntakerfið er okkar allra og við megum sannarlega öll hafa á því skoðun,“ segir Pawel. Ætla mætti að þarna hafi Pawel lög að mæla. Hann segir erfitt að sannreyna hvort samræmis sé gætt við námsmat meðan meðaleinkunnir úr skólum eru meðhöndlaðar eins og um kjarnorkukóða í kafbáti væri að ræða. „Það er orðinn ógerningur að fá niðurstöður samræmdra könnunarprófum úr skólum, það er ekki hægt að sjá niðurbrot skólaeinkunna í 10. bekk eftir skólum og meira að segja stjórnendur grunnskóla mega ekki sjá eigin niðurstöður úr Pisa-könnunum. Þessari leyndarhyggju er að líklega ætlað að verja suma skóla fyrir neikvæðu umtali og viðhorfið í kerfinu virðist heldur vera að fella burt þá samræmdu mælikvarða sem þó hafa verið við lýði. En ekkert af þessu er þó líklegt til að auka traust á kerfinu til lengdar,“ segir Pawel meðal annars í athyglisverðri grein. Prófgeta í grunnskóla segi ekkert um námsárangur í Háskóla Einn er þó sá maður sem er ekki hrifinn og það er áðurnefndur Ragnar Þór. Hann bendir á að Pawel sjálfur hafi fyrir allmörgum árum unnið úttekt fyrir Frjálsa verzlun þar sem hann setti sama 17 þátta mælikvarða á hvað teldist góður framhaldsskóli. Hins vegar hafi engin fylgni verið milli niðurstöðu Pawels og svo hvernig árangur milli ólíkra framhaldsskóla teiknaði sig upp í Háskólanum. Reyndar væri það svo að Verzlunarskólinn hafi alls ekki komið vel út þegar gert var upp úr kössunum. „Pawel prófdómari mat Verzló sem bronsskóla Íslands á sama tíma og HÍ taldi skólann varla komast upp úr undanriðlum sum árin, og næstum aldrei í úrslit,“ segir Ragnar Þór í niðurlagi greinar sinnar. Hann segir að það hafi hreint ekki gefist vel, það kerfi sem Viðskiptaráð, bakhjarl Verzlunarskóla Íslands, kalli nú eftir. „Árið 2012 var stærsti hópur útskriftarnemenda Verzló á félagsvísindasviði HÍ og skilaði þar meðaleinkunn upp á 6,59. Sem skilaði þeim 17. sæti yfir námsárangur, sjónarmun á eftir Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu en töluvert að baki Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Verzlingum gekk heldur betur á öðrum brautum háskólans en náðu samt hvergi hærra en sjöunda sæti yfir námsárangur það ár,“ segir meðal annars í grein kennarans. Brynjar, Óli Björn og Pawel á villigötum Og Ragnar Þór notar tækifærið og hnýtir í menn á borð við Brynjar Níelsson og Óla Björn Kárason. Auk Pawels. Ragnar Þór segir það ekki sitt að dæma, hvort matið sé réttmætara og hann telur það sannast sagna ekki skipta miklu máli. „Fyrir utan örfáa aðila sem mikið fer fyrir í umræðunni þessa dagana held ég að flestir Verzlingar hafi endað sem hið færasta fólk á sínu sviði. Hinsvegar getum við fullyrt með sæmilegri vissu og viti er að það er miklu flóknara að dæma gæði skóla og nemenda en svo að það verði nokkru sinni gert með einföldum, samræmdum prófum.“
Skóla- og menntamál PISA-könnun Grunnskólar Háskólar Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira