Ólafur Ingi þjálfar 21 árs landsliðið og Þórhallur tekur við af honum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2024 12:38 Ólafur Ingi Skúlason fór með nítján ára landsliðið í úrslitakeppni Evrópumótsins sumarið 2023. Getty/Seb Daly Knattspyrnusamband Íslands hefur fundið nýja þjálfara fyrir tvö yngri landsliðs karla í knattspyrnu. Þetta eru 19 ára landsliðið og 21 árs landsliðið.
Davíð Snorri Jónasson hættir sem þjálfari 21 árs landsliðsins en hann var ráðinn aðstoðarþjálfari A landsliðs karla í vor. Ólafur Ingi Skúlason hefur verið ráðinn þjálfari U21 landsliðs karla og tekur við starfinu af Davíð Snorra. Ólafur hættir um leið með nítján ára landsliðið. Þórhallur Siggeirsson hefur á sama tíma verið ráðinn þjálfari U19 landsliðs karla og tekur við því starfi af Ólafi Inga. Ólafur Ingi, sem lýkur UEFA Pro þjálfaragráðu á haustmánuðum, var ráðinn þjálfari U19 ára landsliðs karla í janúar 2021. Hann náði eftirtektarverðum árangri sem þjálfari þess liðs og fór með liðið í úrslitakeppni EM 2023. Ólafur Ingi mun einnig sinna starfi aðstoðarþjálfara í U16/U17 ára landsliðum Íslands. Lúðvík Gunnarsson er þjálfari U16/17 liðanna en mun aðstoða Ólaf Inga í U21. Þórhallur hefur verið aðstoðarþjálfari U21 liðs karla frá árinu 2021 og lætur nú af því starfi. Hann hefur jafnframt verið yfir Hæfileikamótun N1 og KSÍ frá árinu 2023 ásamt því að þjálfa U15 ára landslið karla frá því sama ári, og mun halda áfram að vinna með það verkefni ásamt nýjum aðila sem verður ráðinn síðar. Þórhallur á að baki fjölbreyttan feril sem þjálfari frá árinu 1999 - verið yfirþjálfari, þjálfað yngri flokka, þjálfað mfl., þjálfað í Noregi og Indlandi svo dæmi séu tekin. Þórhallur klárar UEFA Pro þjálfaragráðu árið 2025 og er með meistaragráðu í íþróttafræðum frá HR. Leit er hafin að nýjum þjálfara í U15 og Hæfileikamótun karla sem einnig mun sinna aðstoðarþjálfun í U19 karla.
Landslið karla í fótbolta KSÍ Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti