Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Jón Ísak Ragnarsson skrifar 15. júní 2024 15:00 Vilhjálmur Egilsson bendir á að karlar eru með hærri tekjur en konur í öllum aldurshópum, þrátt fyrir að undanfarin ár hafi konur verið í miklum meirihluta í háskólanámi. Vilhjálmur var rektor Háskólans á Bifröst árin 2013-2020, en á myndinni er Háskóli Íslands Vísir/Vilhelm Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur og fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, veltir því fyrir sér hvort strákar séu ekki bara að gera rétt í því að eltast ekki við skólagöngu og háar einkunnir. Karlar séu með hærri tekjur en konur í öllum aldurshópum, þrátt fyrir að yngri konur séu líklegri en karlar til að hafa gengið menntaveginn.
Hávær umræða hefur verið lakari frammistöðu drengja í námi undanfarin ár og aukið brottfall þeirra úr námi. Mun lægra hlutfall karla en kvenna hefur lokið háskólaprófi undanfarin ár, og hátt hlutfall drengja mælist með lélega kunnáttu í lestri í PISA könnunum. Vilhjálmur Egilsson birti pistil á Feisbúkk í gær þar sem hann benti á að þrátt fyrir þetta séu karlar enn tekjuhærri en konur í öllum aldurshópum, og velti því fyrir sér hvort þeir væru ekki bara að gera rétt í því að eltast ekki við skólagöngu. Sjá töflu um heildartekjur eftir aldri og kyni á vef Hagstofunnar. Hugsun „framleiðslulínunnar“ ráðandi í uppbyggingu menntakerfisins Hann segist hafa fengið aðra sýn á háskólana og menntakerfið við störf sín sem rektor Háskólans á Bifröst. „Fyrr var ég fastur í hugsun framleiðslulínunnar þar sem einstaklingarnir koma inn á línuna 6 ára og fara út af henni á þrítugsaldri menntaðir fyrir eitt ævistarf helst hjá sama vinnuveitanda,“ segir Vilhjálmur, og að hugsun framleiðslulínunnar hafi verið ráðandi í uppbyggingu menntakerfisins. Hann segir að fólk sem sótti í Háskólann á Bifröst hafi fyrst og fremst verið vinnandi fólk sem vildi auka við menntun sína, og að meðalaldur þeirra hafi verið um 38 ár. Tveir þriðju þeirra hafi verið í fullri vinnu með námi. Meðalaldur nemenda við Háskólann á Bifröst hefur verið um 38 ár, og tveir þriðju þeirra hafa verið í fullu starfi meðfram námiVísir/Vilhelm Hvert starf sífellt að breytast og sóun að fara í nám með hálfum huga „Sífellt fleira fólk þarf að skipta um starf oftar en einu sinni og oftar en tvisvar eða þrisvar á starfsævinni og jafnvel að búa sér til sitt eigið starf. Sífellt þarf að uppfæra þekkinguna og hvert starf er sífellt að breytast. Eins þarf oft að skapa möguleika á að færa sig af einu sviði á annað,“ segir Vilhjálmur. Þess vegna leiti fólk í háskólana á öllum aldri, en svipaður fjöldi háskólanema sé á Íslandi 35 ára og eldri eins og 24 ára og yngri. Það geti vel verið áleitin spurning fyrir ungan karlmann hvort það sé skynsamlegra að fara í skóla og læra eitthvað sem hann veit ekki hvort hann hefur endilega áhuga á, eða fara á vinnumarkaðinn og leggja sitt af mörkum til samfélagsins og fara svo í það nám sem hentar honum þegar það hentar honum. Karlar eru með hærri tekjur en konur í öllum aldurshópumHagstofan „Ætli þetta komi nokkuð verr út fyrir samfélagið nema síður sé. Það er líka sóun að fara í nám með hálfum huga eða sem ekki er svo nýtt og það er engin tilviljun að margir taka sér frí frá námi í eitt ár eftir stúdentspróf,“ segir Vilhjálmur sem segist jafnframt hafa gert það sjálfur. Hvað sem um þetta megi segja sé ljóst að á heildina litið sé vandræðagangur drengja í skólakerfinu ekki að koma niður á þeim tekjulega séð. Nokkur umræða skapaðist einnig um hugleiðingar Vilhjálms á Feisbúkkhópnum Skólaþróunarspjallið.
Skóla- og menntamál Háskólar Tengdar fréttir Nefnir legókeppni sem mögulegt ráð við vanda drengja „Ég held að „svarið“ við veseni á strákunum sé ekki að skrifa fleiri bækur um fótbolta, (ofuráhersla á bolta og óhóflegt gláp feðra mætti jafnvel rannsaka sem hluta af vandamálinu). Allavega, skólafólk mætti skoða þessa keppni fyrir næsta ár, það er mikilvægt að stækka heimsmynd krakkanna með verkefnum að þessu tagi eða útskýra af hverju þeir kjósa að taka ekki þátt.“ 10. júní 2024 16:07 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira
Nefnir legókeppni sem mögulegt ráð við vanda drengja „Ég held að „svarið“ við veseni á strákunum sé ekki að skrifa fleiri bækur um fótbolta, (ofuráhersla á bolta og óhóflegt gláp feðra mætti jafnvel rannsaka sem hluta af vandamálinu). Allavega, skólafólk mætti skoða þessa keppni fyrir næsta ár, það er mikilvægt að stækka heimsmynd krakkanna með verkefnum að þessu tagi eða útskýra af hverju þeir kjósa að taka ekki þátt.“ 10. júní 2024 16:07