Skoðun

Af­reks­konan Katrín

Steinunn Jóhannesdóttir skrifar

Katrín Jakobsdóttir er meðal bestu dætra íslensku þjóðarinnar. Hún er afrekskona á sínu sviði og sambærileg við þær konur sem lengst hafa náð í íþróttum, listum, félags- viðskipta- og menningarlífi. Þar sem hennar miklu afrek hafa verið unnin á sviði stjórnmálanna liggur það í hlutarins eðli að verk hennar hafa orðið umdeild, sumir eru hæstánægðir með tiltekna lagasetningu á meðan aðrir eru hundfúlir. Sumir eru fullir aðdáunar á því að henni skuli hafa tekist að stýra þriggja flokka ríkisstjórn sem forsætisráðherra í á annað kjörtímabil á sama tíma og gengið var í gegnum hvert stóráfallið af öðru, heimsfaraldur og náttúruhamfarir af sjaldgæfu tagi. Aðrir líta á tíð hennar í starfi forsætisráðherra sem svik við kjósendur VG! Í stjórnmálum verður aldrei gert svo öllum líki.

Það hefur því ekki komið á óvart að framboð Katrínar framkallaði háværari umræður og gagnrýni en annarra frambjóðenda. Hún hefur meira og minna unnið allt sitt starf fyrir opnum tjöldum, meðan mun minna er vitað um afrek eða mistök hinna. Það sem þó hefur komið á óvart er heiftin sem beinist gegn persónu hennar frá tilteknum hópi og gleymskan á allt það góða sem hún hefur átt hlut að. Hún var t.d. ungur menntamálaráðherra þegar hún tók höndum saman við borgarstjórann í Reykjavík, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, um byggingu tónlistarhússins Hörpu skömmu eftir Hrun. Hún var á oddinum í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur þegar hjúskaparlögunum var breytt í Ein lög fyrir alla 2010 með margvíslegum réttarbótum fyrir samkynhneigða. Mannréttindamál hvers konar eru eins og yfirskrift yfir öllum hennar stjórnmálaferli. Það var ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sem tók ákvörðun um byggingu varnargarða umhverfis Grindavík, þegar hraunflóð ógnaði byggðinni. Og eitt hennar síðasta verk á stóli forsætisráðherra var að liðka fyrir í alvarlegum kjaradeilum og tryggja börnum ókeypis máltíðir í skólum.

Framganga Katrínar sem fulltrúi Íslands á erlendum vettvangi hefur vakið bæði eftirtekt og aðdáun. Á því stóra sviði hefur hún glansað. Þar skín af henni látleysi og sjálfstraust í senn, heillandi viðmót og hæfileikinn til að eiga í samskiptum við háa sem lága á jafnréttisgrundvelli. Frambærilegri fulltrúa þjóðarinnar er vart hægt að hugsa sér.

Katrín Jakobsdóttir er meðal bestu dætra þessa lands. Hún hefur allt til að bera sem prýða má næsta forseta lýðveldisins. Kjósum Katrínu fyrir forseta Íslands.

Höfundur er rithöfundur.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×