Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Jón Þór Stefánsson skrifar 19. apríl 2024 15:43 Héraðsdómur kvað upp dóm sinn yfir Elmari Erni Sigurðssyni sjómanni í vikunni. Vísir Tæplega sextugur karlmaður hlaut í vikunni þriggja og hálfs árs fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tvær nauðganir og fyrir að taka þær upp. Maðurinn heitir Elmar Örn Sigurðsson, en brotin áttu sér stað í janúar og september 2017.
Í fyrra málinu var honum gefið að sök að nauðga konu á meðan hún lá sofandi eða meðvitundarlítil í rúmi. Í ákæru segir að hann hafi notfært sér að hún gæti ekki spornað við verknaðinum vegna áhrifa áfengis og svefndrunga. Seinni nauðguninni er lýst á mjög líkan hátt í ákærunni, en hún beindist að sömu konu. Helsti munurinn á lýsingunum tveimur var að það fyrra átti sér stað á heima hjá honum að degi til, en seinni heima hjá henni að nóttu til. Þar að auki var manninum gefið að sök að hafa útbúa myndskeið af nauðgununum án samþykkis né vitneskju konunnar. Síðan hafi hann sett myndefnið á minnislykil sem hann kom fyrir í póstkassa konunnar. Fullyrt í dómnum að maðurinn og konan hafi átt í sambandi og að það hafi verið stormasamt. Maðurinn hafði áður verið ákærður fyrir brot gagnvart konunni, meðal annars fyrir nauðgun, líkamsárás, hótun og kynferðislega áreitni. Hann var sýknaður af hluta þeirrar ákæru en dæmdur fyrir kynferðislega áreitni. Þá hlaut hann sex mánaða skilorðsbundin dóm. Sagðist aldrei hafa tekið þátt í BDSM-leikjum Í málinu sem hér um ræðir vildi Elmar ekki meina að um nauðgun hefði verið að ræða í fyrra atvikinu. Þau hefðu verið í BDSM-kynlífsleik þar sem hann væri í hlutverki drottnara en hún í hlutverki ambáttar. Konan sagði svo ekki vera, hún hefði ekki lagt stund á BDSM leiki né „kynlíf sem fælist í að liggja grafkyrr og hreyfingarlaus“. Hún sæi ekki tilgang í því. Þar að auki sagði hún augljóst af myndbandinu að dæma að hún hefði verið dauðadrukkin. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu í vikunni.Vísir/Vilhelm Upptakan af nauðguninni var til umræðu fyrir dómi. Að mati dómsins er augljóst að maðurinn standi fyrir upptökunni. Þá verður ekki annað séð að konan hafi verið nánast rænulaus, en sjálf sagði hún það vera vegna áfengisdrykkju. Dómurinn sagði framburð mannsins mótsagnakenndan og var hann metinn einkar ótrúverðugur. Hins vegar þótti framburður konunnar trúverðugur. „Jú, við ætlum að selja þetta myndband“ Varðandi seinna atvikið bar Elmar fyrir sig svipaða málsvörn. Um leik væri að ræða þar sem hann væri drottnari og hún ambátt þar sem hún þyrfti að „lúta vilja drottnarans í einu og öllu meðan á leiknum stæði.“ Að sögn dómsins er yfirbragð seinna myndbandsins svipað og fyrra mynskeiðsins. Fram kemur að í seinna myndbandinu hunsi konan með öllu orð konunnar sem mæli lágum rómi. Hún heyrist segja „Nei“ í upphafi myndbandsins og hann svarar: „Jú, við ætlum að selja þetta myndband.“ Maðurinn vildi meina að þegar konan hefði neitað honum hafi hún átt við um að selja myndbandið á klámsíðu. Hún hafi ekki verið a neita honum um samfarir. Dómurinn sagði að hvort sem væri - að hún væri að neita honum um samfarir eða að taka myndbandið upp – þá hefði hann hundsað beiðni hennar hvort sem er. Þar að auki væri ekkert sem lægi fyrir í málinu sem styddi þá túlkun mannsins að hún hefði verið að neita uppökunni fremur en samræðinu. Trúverðugleiki mannsins var metinn á svipaða vegu og í fyrri ákæruliðnum, en frásögn konunnar trúverðug. Hann var því sakfelldur fyrir báðar nauðgunirnar. Upptakan blygðunarsemisbrot Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir þriðja ákærulið málsins, sem varðaði upptöku á athæfinu og að setja það í póstkassa hennar. Þó var ekki fallist á brotið félli undir 199. grein almennra hegningarlaga, sem varðar öflun, dreifngu eða birtingu á kynferðislegu efni, heldur væri um blygðunarsemisbrot að ræða. Líkt og áður segir hlaut Elmar Örn þriggja og hálfs árs fangelsisdóm. Honum var gert að greiða konunni 2,2 milljónir króna í miskabætur og tæpar 3,5 milljónir í sakarkostnað.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Fleiri fréttir Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Sjá meira