Bjarni Ben, Inga Lind og miklu fleiri í golfi í sólinni Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 3. apríl 2024 09:50 Bjarni Benediktsson og Inga Lind Karlsdóttir eru meðal þeirra sem nutu lífsins um páskana. Páskarnir eru búnir og það þýðir bara eitt: Vorið er komið. Ekki veðurfarslega séð en að minnsta kosti þegar litið er til mannlífsins. Það hefur nefnilega verið nóg að gera hjá þekktasta og skemmtilegasta fólki landsins.
Þannig skelltu þau Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra og eiginkona hans Þóra Margrét Baldvinsdóttir sér í golfferð á Spáni. Þar voru líka leikarahjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson. Þau voru einmitt ítrekuð kölluð upp í kalkerfinu á Keflavíkurflugvelli og voru næstum búin að missa af flugferðinni út. Inga Lind Karlsdóttir lét sig heldur ekki vanta í sólina og á golfvellinum, steinsnar frá á eyjunni fögru Tenerife. Það var einmitt brjálað að gera á Keflavíkurflugvelli yfir páskana og miklu fleiri þar heldur en bara þau Nína og Gísli. Þar lét Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda sig ekki vanta á leið í rómantíska ferð til Rómar með kærustunni Guðrúnu Rögnu Hreinsdóttur. Heldur ekki Hataraparið Sólbjört Sigurðardóttir og Einar Stefánsson. Anna Margrét Jónsdóttir fegurðardrottning naut sömuleiðis lífsins í þann mund sem hún var að fara til útlanda. Baldur Þórhallsson og Felix Bergsson létu sig ekki vanta í fjörinu utanlands heldur. Þeir komu aftur heim með flugi frá Berlín eftir helgina alþýðlegir á almennu farrými þar sem Baldur var með nefið ofan í símanum enda kosningabaráttan komin á fullt skrið. View this post on Instagram A post shared by Guðru n Ragna Hreinsdo ttir (@gudrunragna) Það voru ekki allir sem fóru til útlanda. Þess bar merki í sundlaugum landsins þar sem svo gott sem öll helstu stjörnur landsins nutu lífsins, meðal annars í Vesturbæjarlauginni. Þar sást Rúnar Freyr Gíslason verkefnastjóri RÚV í hrókasamræðum við þá Högna Egilsson og Björn Jörund Friðbjörnsson. Allir fastagestir í lauginni. Þá lét annar hver leikari landsins sig ekki vanta í þessari goðsagnakenndu laug. Halldóra Geirharðsdóttir naut þar lífsins, líka Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir mögulegur forsetaframbjóðandi, Magnús Jónsson,Víkingur Kjartansson og Kjartan Guðjónsson. Þá má ekki sofa á tónlistarfólkinu sem mætti í laugina, þeim Flóna og Kalla Olgeirssyni og heldur ekki myndlistarfólkinu Finni Arnari Arnarsyni og Áslaugu Thorlacius. Þó páskarnir snúist um sælgætis-og súkkulaðiát létu ekki allir það stoppa sig í heilsuræktinni. Sveinn Andri Sveinsson bræddi af sér páskaeggið á hlaupabretti í Laugum. Þar var líka ofurparið Logi Geirsson og Inga Tinna Sigurðardóttir á sjálfan páskadag. Birta Líf Ólafsdóttir var einnig á svæðinu, í Laugar Cafe. Örstutt frá var Sölvi Tryggvason í Laugardalslaug. Hann gekk beina leið úr útiklefanum í sjópottinn en athygli vekur að hann er elgtanaður enda nýkominn til landsins frá Asíu þar sem hann sleikti sólina á milli ísbaða. Þrátt fyrir að fara ekki til útlanda létu margir það ekki stöðva sig í því að njóta lífsins. Sigurður Örn Hilmarsson formaður lögmannafélags Íslands tók fjölskylduna og vini með í aprés ski á Siglufirði eins og svo margir landsmenn sem nutu lífsins á Norðurlandi. Aðrir létu sér nægja að njóta lífsins í Reykjavík eins og til dæmis Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslunnar sem naut lífsins á Jómfrúnni á föstudaginn langa.
Frægir á ferð Tengdar fréttir Arnar Grant og Vítalía á kaffihúsi og RÚV þrenna í miðborginni Sólin hækkar alltaf á lofti með hverjum deginum sem líður og vorjafndægur gengu loks í garð. Nú er tíminn til að tjútta, sýna sig og sjá aðra. Njóta lífsins og hafa gaman. Saman. 26. mars 2024 07:01 Mest lesið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Osaka best klædd á Wimbledon Tíska og hönnun Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Leikarapar selur í 101 Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Sjá meira
Arnar Grant og Vítalía á kaffihúsi og RÚV þrenna í miðborginni Sólin hækkar alltaf á lofti með hverjum deginum sem líður og vorjafndægur gengu loks í garð. Nú er tíminn til að tjútta, sýna sig og sjá aðra. Njóta lífsins og hafa gaman. Saman. 26. mars 2024 07:01