Fólkið er allt með dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar og á því allt fjölskyldu hér á landi. Í hópnum er til dæmis faðir með þrjú börn. Þar af einn dreng sem særðist í árásum Ísraela. Þá eru þrjár mæður með eitt barn. Tvö þeirra eru eins árs á meðan það þriðja er þriggja ára langveik stúlka.
„Hún er búin að vera án lyfja í langan tíma,“ segir Gunnhildur Sveinsdóttir, sjálfboðaliði og sálfræðingur, en hún lenti í morgun á Íslandi eftir að hafa verið í Kaíró á Egyptalandi til að aðstoða við flutning fólksins yfir landamærin frá Gasa.

Í góðu samstarfi við félagsmálaráðuneytið
Hún segir að með þessum hópi hafi einnig verið einn eldri maður en að hann hafi ekki getað flogið með þeim vegna veikinda. Það standi vonir til þess að hann geti það seinna í vikunni.
„Þau koma hingað í fylgd með IOM. Það er læknir sem fylgir þeim alla leið,“ segir Gunnhildur og að vinna sjálfboðaliðana í Egyptalandi hafi meira falist í því að koma þeim yfir landamærin. Eftir það taki IOM við þeim en stofnunin er með lista frá félagsmálaráðuneytinu um dvalarleyfishafa og aðstoðar fólkið hingað á grundvelli samnings við ráðuneytið.
„Við erum búin að vera í góðu sambandi við félagsmálaráðuneytið,“ segir Gunnhildur og að hún eigi von á að ráðuneytið haldi áfram að aðstoða fólk við að koma hingað. Sjálfboðaliðarnir sem nú eru í Kaíró vinna nú að því að koma um 17 manns yfir landamærin og eiga þau von á því að það gerist á næstu dögum.

Hvernig var að vera þarna úti?
„Það var mjög mikil vinna,“ segir Gunnhildur og að vinna sjálfboðaliðana sé tvíþætt. Annars vegar taki þau á móti fólkinu sem kemur yfir og sjái þeim til dæmis fyrir hótelherbergi og einhverjum nauðsynjum. Hins vegar vinni þau svo að því að koma fleirum á lista hjá egypskum stjórnvöldum til að komast yfir landamærin.
„Maður kemur dálítið uppgefinn heim en þetta var algerlega þess virði. Það var gott að vera í Kaíró og vel tekið á móti manni.“
Engar mútugreiðslur
Spurð um vinnu sjálfboðaliðana og hvort að þau séu að múta til að koma fólki yfir landamærin segir Gunnhildur svo alls ekki vera. Það sé frekar á hinn veginn. Það sé allt gert þarna til að koma í veg fyrir að eitthvað slíkt eigi sér stað þarna.
„Við erum ekki að múta, nei. Þetta er bara skrifstofa á vegum egypskra stjórnvalda sem er fyrir fjölskyldur. Það eru þarna palestínskar fjölskyldur sem fara þangað og nýta þessa þjónustu. Við fáum kvittanir fyrir þessu öllu saman og það eru engar mútugreiðslur. En maður getur alveg viðurkennt að manni finnst skrítið að egypsk stjórnvöld séu að taka við þessum upphæðum. En þetta er allt uppi á borðum og engar mútugreiðslur sem hafa farið fram frá okkur.“

Sérðu fyrir þér að fara aftur út?
„Ég væri alveg til í það. En þetta er í sjálfboðavinnu og maður hefur ekki efni á að eyða bara í þetta. Maður þarf að vinna fyrir peningum líka. Ég hef ekki þegið eina krónu fyrir þetta af þessum söfnunarpening. Það á bara að fara í það að bjarga þessu fólki. En auðvitað, ef ég hefði efni á því, þá myndi ég fara aftur út,“ segir Gunnhildur.
Hún segir að allir sem standi að þessu átaki voni að stjórnvöld taki við þessu verkefni og komi þeim yfir landamærin sem eru með dvalarleyfi. Eins og stendur eru þrír fulltrúar á vegum utanríkisráðuneytisins staddir í Kaíró og vinna að því að koma dvalarleyfishöfum yfir landamærin í samráði við yfirvöld í Egyptalandi, Ísrael auk fulltrúa annarra norrænna ríkja á svæðinu.
„Vonandi bara þarf þetta verkefni sjálfboðaliðana ekkert að halda lengi áfram. En á meðan það gerist ekki þá höldum við áfram,“ segir Gunnhildur að lokum.

