Sögulegur samningur hjá Sigvalda Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2024 15:11 Sigvaldi Guðjónsson fagnar hér einu af mörkum sínum á EM í Þýskalandi í janúar. Vísir/Vilhelm Íslenski landsliðsmaðurinn Sigvaldi Guðjónsson hefur skrifað undir nýjan og sögulegan samning við norska félagið Kolstad.
Sigvaldi skrifar undir lengsta samninginn í sögu félagsins en hann er til sex ára og gildir því til ársins 2030. Kolstad segir frá samningnum á heimasíðu sinni. Árið 2030 þá verður Sigvaldi orðinn 36 ára gamall. Hann er fyrirliði liðsins í dag. „Nei, nei ég verð ekki orðinn gamall maður þá,“ sagði Sigvaldi hlæjandi í viðtali við heimasíðu félagsins. „Ég er heldur ekki að hugsa um að hætta í handbolta árið 2030,“ sagði Sigvaldi. Það hafa farið fram viðræður á milli Sigvalda, umboðsmanns og framkvæmdastjóra Kolstad. „Ég hélt alltaf að það myndi ekki fara mikill tími í þetta og ég bjóst alltaf við þessum endi. Báðir aðilar vildu langan samning en ég sá þó ekki fyrir að hann yrði til ársins 2030. Þetta er lengsti samningurinn sem ég hef skrifað undir,“ sagði Sigvaldi. „Ég hef mikla trú á því sem er í gangi hjá Kolstad. Mér finnst ég hafa mikilvægt hlutverk og get lagt mitt að mörkunum til þess að við getum spilað Meistaradeildarhandbolta í mörg ár. Líka barist um sæti á úrslitahelginni,“ sagði Sigvaldi.
Norski handboltinn Mest lesið Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Fótbolti Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Fótbolti Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Enski boltinn Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Fótbolti Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Íslenski boltinn Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Golf Fleiri fréttir Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira