Forustusauðir sverja af sér ábyrgð Vilhelm Jónsson skrifar 19. febrúar 2024 15:02 Náttúruhamfarir á Reykjanesskaganum gefa fullt tilefni til að farið sé ofan í saumana á hversu óábyrgt verklag og forvarnir áttu sér stað í þeim umbrotum og jarðhræringum sem staðið hafa yfir síðustu fjögur ár. Yfirklór og afneitun um slakt verklag eru allsráðandi hjá stjórnvöldum, Almannavörnum, lögreglustjóra að ekki sé minnst á yfirstjórn HS Orku og Svartsengi. Það mætti ætla að þjóðin sé staurblind og láti allt yfir sig ganga og virðist ekki gera sér grein fyrir vítaverðri forræðishyggju yfirvalda og hvernig fyrirtækjum og heimilum hefur verið mismunað að bjarga eigum sínum. Það var ekki fyrr en eldgos hófst 14. janúar við Hagafell að forsvarsmenn virkjana ásamt yfirvöldum rönkuðu úr rotinu og fóru að vinna vinnuna sína og skynja að innviðir voru í mikilli hættu. Sviðsmyndin hefði geta orðið önnur og þungbærari við síðustu jarðhræringar þegar hraunið vall í túnfætinum á Svartsengi og Bláa Lóninu. Það vantaði lítið upp á að svartasta sviðsmyndin myndi raungerast og raflínur rofna að ekki sé minnst á að virkjunin við Svartsengi hefði þurrkast út. Sé litið til þeirrar kvikusöfnunar sem var að hlaðast upp við Svartsengi og Bláa Lónið í desember og byrjun janúar og raungerðist sem skammvinnt gos að allt fór á hliðina þar sem yfirvöld höfðu hunsað ástandið. Það er ekki sjálfgefið að þjóðin sleppi alltaf svona vel frá hraungosi sé litið til þess hvernig hefði getað farið. Ekki einu sinni þó svo að hlaupið hefði verið korteri fyrir gos og mokað upp varnargörðum á mettíma ásamt uppsprengdu verði og vonast til þess að gos kæmi upp réttum megin. Hótelgestir Bláa Lónsins sluppu með skrekkinn að þessu sinni á hlaupum í morgunsárið frá eldtungum sem streymdu á ógnarhraða að Lóninu, sem var rýmt á 40 mínútum, og það vildi svo vel til að fáir næturbaðgestir voru sem betur fer ekki í Lóninu. Það er ekki sjálfgefið að stjórnvöld geti skautað frá hugsanlegum hörmungum ef svifaseinir baðgestir verða soðnir og grafnir úti í miðju Lóni þar sem gaus ekki á réttum stað og tíma. Ferðamaðurinn áttar sig heldur ekki á því að verði slys og manntjón vegna jarðhræringanna munu eigendur Lónsins verða fljótir að sverja af sér ábyrgð og benda á að bótaskyldan liggi hjá íslenskum skattgreiðendum sem ekki munu fara varhluta af afleiðingunum. Framkvæmdarstjóri verksviðs Bláa Lónsins hefur verið iðin að benda á að hún treysti Almannavörnum og öðrum fræðingum til að meta aðstæður. Velta má fyrir sér hvort slíkt sé sagt til að firra Lónið ábyrgð verði manntjón þar. Verði stórslys í Bláa Lóninu er eðlilega ekki sjálfgefið að alþjóðasamfélagið eftirláti íslenskum yfirvöldum að stýra réttargæslu og réttarhöldum. Væntanlega yrðu bótaábyrgð og refsramminn af öðrum toga þegar vítaverð vanræksla og græðgi eru metin. Refsiramminn verður væntanlega einnig þyngri og meiri en skilorðsbundinn dómur og meiri en kattarþvotturinn sem viðgengst á Íslandi, engu mun skipta þó svo að stjórnvöld líti málið alvarlegum augum. Ísland er ofarlega á lista sem eitt af spilltustu ríkjum heims, og sá stimpill hverfur ekki svo auðveldlega. Rafmagnslínur héngu nánast á lyginni þegar fljótandi hraun streymdi kringum staurastæður og hitaveitulögn sem sér Suðurnesjunum fyrir jarðvarmaorku gaf sig að lokum, að ekki sé minnst á að virkjun við Svartsengi hefði getað þurrkast út með skelfilegum afleiðingum. Til að kóróna bullið (fréttaflutning) spurði fréttamaður hvort tjónið væri svartasta sviðsmynd sem ætti sér stað þegar hitaveitulögnin gaf sig. Tjón og afleiðingar voru lágmarkað á síðustu stundu fyrir tilverknað þess að forustusauðir fóru að vinna vinnuna sína ásamt að vinnusamar hendur öxluðu ábyrgð óábyrgra manna. Eignatjón sem þúsundir heimila og fyrirtækja hafa orðið fyrir mun koma í ljós á næstum vikum og mánuðum og verða þjóðinni dýrkeyptara en þingmenn við Austurvöll gera sér grein fyrir. Almannavarnir ásamt lögreglustjóra Suðurnesja hafa verið einn helsti þrándur í götu þess að íbúar Grindavíkur hafi fengið svigrúm til að bjarga fasteignum sínum frá skemmdum. Stjórnvöld moka milljörðum út með óábyrgum hætti og í örvæntingu til að draga úr áhrifum af skeytingarleysi og sinnuleysi óábyrgra manna síðustu ár. Stjórnsýslan varpar ábyrgð frá sér sem fyrr og telur rétt að læra af þessum hamförum, sem hafa legið í loftinu síðustu fjögur ár. Þó svo að vel hafi verið staðið að verki þegar allt var komið í óefni og samtakamátturinn til fyrirmyndar er full ástæða til að fara ofan í kjölinn á skeytingarleysi- og verkleysi sem hefur viðgengst undanfarin ár. Sveitarfélagið Vogar hlýtur að líta í eigin barm eftir að hafa verið árum saman einn helsti farartálmi fyrir nýju línustæði sem umhverfissinnar en raungerðist samt ekki í skiptum fyrir Laxeldi síðastliðið haust. Víðast hvar í siðmenntuðum löndum hefðu ráðherrar og önnur yfirstjórn ásamt veitu fyrirtækja verið gert að axla ábyrgð og taka pokann sinn en á Íslandi er þrælslundin allsráðandi. Stjórnvöld og forsvarsmenn HS Orku og Svartsengi eru óábyrg og ættu að biðja þjóðina afsökunar á vítaverðu kæru- og verkleysi sem þjóðin er að súpa seiðið af og segja af sér. Til að kóróna bullið og fréttaflutning af hörmungunum við Svartsengi er bitlaus fréttakona frá RÚV fengin til að stýra Kastljósþætti (drottningarviðtal) og kryfja mál sem hún hafði ekki hundsvit á og bulla tóma steypu við forsætisráðherra. Ráðherrann hafði einnig litla sem enga þekkingu á sviðsmyndinni og reyndi að útskýra með gamalkunnugu handapati hvað allt væri flókið. Það muna eflaust fleiri fara á taugum næstu misserin en sviðsstjóri Almannavarnar, sem óskaði eftir veikindaleyfi, og er hugsanlega kominn í þrot að svara fyrir óánægjuraddir Grindvíkinga. Það hefði mátt afstýra miklum skemmdum á fasteignum í Grindavík hefði verið brugðist við með markvissari forvörnum, t.d. með því að girða af hættumestu svæði. Sem betur fer var brugðist við með því að reyna að afstýra skemmdum í öðrum sveitarfélögum á Suðurnesjunum með markvissari hætti en í Grindavík. Skaðinn er skeður og mun koma enn frekar í ljós næstu vikurnar. Það mun víða leka úr frostsprungnum lögnum í veggjum og undir parketi, hurðarkörmum og víðar að ekki sé minnst á hitaslaufur í bílastæðum og gangstéttum. Það er tímabært að þjóðin fari að skilja að það þarf líka að borga fyrir óstjórn og verkleysi ofan á náttúruhamfarir og sá reikningur verður hár. Almannavarnir ásamt lögreglustjóra Suðurnesja hafa verið einn helsti dragbítur að íbúar Grindavíkur og iðnaðarmenn hafi fengið svigrúm til að bjarga fasteignum frá skemmdum. Bæjaryfirvöld sváfu á verðinum síðastliðið haust þar sem forvarnir voru hunsaðar. Það gafst nógur tími í Grindavík til að afstýra skemmdum, sem var ekki nýttur. Kröfur, óánægja og málsóknir um bætur og viðgerðir á húseignum munu ef að líkum lætur streyma inn næstu mánuði ef ekki ár á ríkissjóð Íslands. Hraunið var vart farið að kólna þegar Blá Lónið var umsvifalaust opnað fyrir tilverknað óvandaðra manna sem sjá ekkert athugavert við það að spila rússneska rúllettu gagnvart baðgestum og starfsfólki þar sem ofsahagsmunir eru í húfi. Það verða margir viljugir að draga fram svívirðilegt verklag Almannavarna hversu frjálslega öryggiskröfum er stýrt í Bláa Lóninu týni baðgestir og starfsfólk lífi sínu þar. Sé litið til umbrota og kvikusöfnunar sem áttu sér stað við Svartsengi og Bláa Lónið eru verulegar líkur á að hættulegar sprungur leynist þar og ætti að gilda sama verklag og í Grindavík. Á sama tíma og Reykjanesskaginn stóð í björtu báli og stórt byggðarlag gekk í gegnum miklar hörmungar svaf Alþingi Íslands fimm vikna þyrnirósarsvefni til að klára jólafríið sitt. Það er eitthvað mikið að íslenskum stjórnarháttum sé litið til þess hversu oft sérsveitinni er beitt með ógeðfelldum hætti þegar börn og viðkvæmt fólk eru annars vegar sem hafa ekkert til saka unnið. Einnig er óboðlegt að bæjarbúar sem eru að reyna að bjarga eigum sínum og ævistarfi skulu þurfa að standa í orðaskaki við yfirvöld sem leynt og ljóst bera fyrir sig sérsveit ríkislögreglustjóra með blakandi byssukjafta og aðra ógnandi tilburði til að berja íbúana til hlýðni. Höfundur er athafnamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vilhelm Jónsson Almannavarnir Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Grindavík Mest lesið Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar