Klinsmann rekinn í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2024 06:31 Suður-kóreska landsliðið tapaði á móti Jórdaníu í síðasta leiknum sínum undir stjórn Jürgen Klinsmann. Getty/Simon Holmes Suður-kóreska knattspyrnusambandið rak í nótt Jürgen Klinsmann úr starfi landsliðsþjálfara eins og stjórnarmönnum sambandins hafði verið ráðlagt í gær.
Hinn 59 ára gamli Klinsmann var aðeins búinn að vera í starfinu í eitt ár en hann var samt með samning fram yfir næstu heimsmeistarakeppni sem fer fram árið 2026. Sérstök ráðgjafanefnd hafði ráðlagt sambandinu að láta Klinsmann fara eftir að liðið komst ekki í úrslitaleikinn í Asíukeppninni á dögunum. Liðið féll út í undanúrslitunum á móti Jórdaníu. Undir stjórn Klinsmann, frá 27. febrúar 2023 til 15. febrúar 2024, þá lék suður-kóreska landsliðið átján leiki og vann átta þeirra eða 44,4 prósent. Liðið gerði sjö jafntefli og tapaði þremur leikjum. Liðið var með 19 mörk í plús, skoraði 38 mörk en fékk 19 mörk á sig. Klinsmann var með 59 prósent sigurhlutfall með þýska landsliðinu og 56 prósent sigurhlutfall með bandaríska landsliðinu. Klinsmann varð sem leikmaður bæði heimsmeistari og Evrópumeistari með Þýskalandi á sínum tíma. Hann hætti að spila árið 2004 og tók fljótlega við þýska landsliðinu sem hann stýrði á HM á heimavelli árið 2006. Liðið vann bronsið undir hans stjórn en hann hætti tveimur árum síðar. Klinsmann þjálfaði líka bandaríska landsliðið í fimm ár og var þjálfari þess þegar Aron Jóhannsson valdi bandaríska landsliðið yfir það íslenska.
Suður-Kórea Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Fleiri fréttir Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Sjá meira