Taílenskt hjá Kára Stef og Dorrit heitasta gellan Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 15. febrúar 2024 11:02 Kári Stefánsson er aðdáandi taílenskrar matargerðar og fágaðra bíómynda ef marka má hegðun hans í vikunni. Vísir/Vilhelm Forsetaframbjóðendur safna undirskriftum, leikarar fjárfesta í Crocs og Kári Stefánsson er hreinlega úti um allt. Dorrit Moussaieff er orðin 74 ára en bar af á frumsýningu þótt margar gellur væru á svæðinu. Frægir hafa sannarlega verið á ferðinni undanfarið.
Arnar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður og forsetaframbjóðandi hefur fengið byr undir báða vængi í kapphlaupinu um forsetastólinn. Hann mælist með töluvert fylgi í óformlegri könnun DV meðal lesenda. Forsetaframbjóðendur þurfa að nýta næstu vikur til að safna undirskriftum en um leið að láta sjá sig meðal almennings. Ástþór Magnússon hefur sést á vappinu með blað og penna í Lögbergi þar sem einhverjir lögfræðingar settu stafi sína á blað. Ástþór spenntur á meðan ónefndur lögfræðinemi skrifar undir. Leiðin að 1500 undirskriftum hjá Ástþóri. Arnar Þór hitti fyrir saltkjötsáhugafólk í Múlakaffi á sjálfan sprengidaginn. Spurning hvort Arnar Þór hafi tryggt sér nokkrar undirskriftir þar. Vonandi hefur hann passað að drekka nóg af vatni með. Hilmar Guðjónsson leikari, Himmi Gau, var einnig á svæðinu en engum sögum fer um það hvort Arnar Þór geti treyst á atkvæði Hilmars þegar gengið verður til kosninga. Mögulega fer atkvæði hans til Sigríðar Hrundar Pétursdóttir sem endurmannaði stöðu samskiptastjóra í teymi sínu í vikunni eftir að Hödd Vilhjálmsdóttir heltist úr lestinni. Sigríður Hrund er sem fyrr sannfærð um sigur. Jón Gnarr leikari er mikið á Akureyri þessa dagana ásamt Sveppa Krull en þeir vinna saman að leikriti sem setja á upp fyrir norðan á næstu vikum. Jón, sem íhugar að fylgja eftir borgarstjórastarfi sínu með því að bjóða sig fram til forseta, fann lítið notaðan titrara í Fjölsmiðjunni fyrir norðan og deildi með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum. Hvort hann ætli að fullnægja þjóðinni með framboði á eftir að koma í ljós. Óvíst er hvort þjóðin sé í sama stuði fyrir Jóni eins og í borgarstjórnarkosningunum um árið. Sveppi og Jón í hádegismat í Fjölsmiðjunni. Crocs skórnir njóta fádæma vinsælda meðal unga fólksins. Sigurður Þór Óskarsson virðist vera mikill aðdáandi en hann skellti sér í Húrra í vikunni. Hann gekk út með ekki færri en þrjú pör af skónum sem fólk deilir um hvort séu töff eða forljótir. Þægindin skipta þó líklega mestu. Siggi Þór er einkar unglegur og þar gætu skórnir hjálpað honum. Sumir segja að ganga sé besta hreyfingin og undir það tekur eflaust Eiður Smári Guðjohnsen knattspyrnumaður sem var á vappinu á Suðurlandsbraut í vikunni. Kappinn er nýkominn heim frá Taílandi þar sem hann spilaði golf sem er líka fyrirtaks hreyfing. Mikið hefur mætt á Karli Inga Vilbergssyni saksóknara hjá héraðssaksóknara í hryðjuverkamálinu svokallaða. Karl Ingi sást á vappinu í Skúlagötu í hádeginu á miðvikudag sem ætti ekki að koma neinum á óvart. Skrifstofa héraðssaksóknara er við Skúlagötu og þaðan er þægileg ganga í Héraðsdóm Reykjavíkur. Karl Ingi Vilbergsson sækir sögulegt mál fyrir hönd Embætti héraðssaksóknara. Vísir/Vilhelm Það gengur vel hjá Miðflokksmönnum á Alþingi þessa dagana en flokkurinn hefur mælst þriðji stærsti flokkurinn í nýlegum könnunum. Félagarnir Bergþór Ólason og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson virtust í skýjunum á göngu sinni á Suðurlandsbraut nærri Íslandsbankahúsinu í gær. Bíða væntanlega spenntir eftir nýjustu tölum. Sú var tíðin að þessir börðust um formannsstólinn hjá Framsókn. Sigurður Ingi hafði betur en nú er Miðflokkurinn á mikilli siglingu ólíkt Framsókn.Vísir/Hulda Margrét Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri skellti sér í göngutúr á Flókagötu á mánudaginn og Randver Þorláksson leikari virti fyrir sér úrvalið í Suðurveri liðna helgi. Það er löngu kominn tími til að þessir meistarar leiði saman hesta sína. Fái kannski John Cleese með í hið fullkomna tríó. Það urðu fagnaðarfundir þegar hlaupadrottningin Mari Järsk hitti Dorrit Moussaieff og hundinn Samson á göngu í Mosfellsbænum. Mari borðar eldstafi í staðinn fyrir að totta sígaretturnar þessa dagana. Frumleg leið að reykleysi. Dorrit stal senunni meðal ungu gellanna þegar hún mætti á frumsýningu fimmtu og síðustu þáttaraðar Æðis á miðvikudag. Dorrit hreinlega blómstraði og þakkaði strákunum í Æði fyrir þeirra mikilvæga framlag. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi ræddi vafalítið velferðarmál og kannski veðrið á Veðurbar á föstudagskvöldið. Þórir Sæm leikari velti því eflaust fyrir sér hvort meintir hryðjuverkamenn væru að grínast eða ekki á Kaffibrennslunni sama kvöld. Innblástur að nýlegri Facebook-færslu Þóris sem hefur vakið athygli í leiðsögumennskunni undanfarið. Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar er aðdáandi góðrar matargerðar og var mættur á Ban Thai á Laugavegi á mánudagskvöldið. Ekki ónýtt að byrja vikuna á góðum mat. Strákarnir í Æði töldu hann svo vera mættan á frumsýningu Æðis í Bíó Paradís á miðvikudaginn en hann var þá á leið í annan sal að horfa á bíómynd. Kári horfir væntanlega á sína menn á Stöð 2+ í staðinn. Kári var í bæði skiptin í fylgd yngri konu, líklega dóttur sinnar.
Frægir á ferð Mest lesið Klæddist brúðarkjólnum daglega í stúdentsprófunum Tíska og hönnun Patrik kaupir glæsihús frænku sinnar Lífið Ástarleikir á fjölbreyttum stöðum Lífið Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Lífið Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Sóley og Kormákur skáluðu í síðsumarsólinni Lífið Segir lýtaaðgerðir hennar leið til að eldast með reisn Lífið Fárveik í París Lífið „Blessaður, þú ert með heilaæxli“ Lífið Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Lífið Fleiri fréttir Ástarleikir á fjölbreyttum stöðum Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Sóley og Kormákur skáluðu í síðsumarsólinni Segir lýtaaðgerðir hennar leið til að eldast með reisn Patrik kaupir glæsihús frænku sinnar Opnar sig eftir handtökuna Töluðu íslensku við mannhafið Hin 93 ára Jóhanna skríður enn um garðinn til að halda honum fínum Fárveik í París Fullkominn brúðkaupsdagur í sænskum kastala Skiptir stærðin raunverulega máli? Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Taylor Swift trúlofuð Taumlaus gleði og stjörnum prýddir tónleikar Stórstjörnur í mögulegum ástarþríhyrningi Leikur Elsu Lund í fatla eftir vondan skell Segir Gleðigönguna ekki vera fyrir sig en styður baráttuna Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Sagan þegar Villi Vill ákvað að lagið Söknuður yrði í eigin jarðarför Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Dansinn dunaði á Menningarnótt Will Smith sakaður um að falsa áhorfendur með gervigreind Lil Nas X laus gegn tryggingu „Blessaður, þú ert með heilaæxli“ Woody Allen segist enginn aðdáandi Pútíns Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið Sjá meira