Hefði verið skelfilegt að byrja ævina á skjalafalsi Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 29. febrúar 2024 08:00 Rakel Grímsdóttir elskar afmælisdaginn sinn. Rakel Gríms Hlaupár er á fjögurra ára fresti líkt og flestum er kunnugt. Í ár bættist auka dagur við almanakið, 29. febrúar. Mest fæddust þrjátíu börn á Íslandi á hlaupársdaginn árið 1980, tuttugu og sjö börn árið 1988 en aðeins sjö börn þennan dag árið 2020.
Vísir heyrði hljóðið í fjórum hlaupaársbörnum sem eru mismikil afmælisbörn. Besti afmælisdagur í heimi Rakel Grímsdóttir flugfreyja fæddist þennan dag árið 1992 og er því 32 ára. Hún segir fólk hafa vorkennt sér í gegnum tíðina að eiga afmæli þennan dag sem hún sjálf sér ekki sem vandamál. „Þetta er í alvörunni besti afmælisdagur í heimi. Þau ár sem 29. febrúar kemur ekki þá á ég í rauninni tvo daga sem ég held upp á afmælið, 28. febrúar og 1.mars, og fjórða hvert ár þegar dagurinn kemur þá á ég þennan risastóra og sérstaka afmælisdag. Ég er frekar mikið afmælisbarn og fjölskyldan mín hefur alltaf passað mjög vel uppá að ég fengi minn afmælisdag þrátt fyrir að það væri ekki hlaupár. Ég fæddist ekki svo löngu fyrir miðnætti og ljósmóðirin bauð mömmu uppá að skrifa mig bara á 1. mars svo ég þyrfti ekki að lifa með því að eiga afmæli á hlaupársdaginn. Rakel Gríms þekkir þá tilfinningu betur en margir að stíga inn og út úr flugvél. Yfirleitt nokkuð stærri vélum í starfi sínu sem flugfreyja.Rakel Gríms Mamma tók það ekki í mál, sem ég er mjög þakklát fyrir, enda hefði verið hræðilegt að missa af því að eiga þennan besta afmælisdag og byrja ævina á skjalafalsi.“ Hentar vel að eiga bara afmæli á hlaupári Arnar Freyr Frostason tónlistarmaður frá Sauðárkróki og liðsmaður dúettsins Úlfur Úlfur, segist auðvitað ekki þekkja annað en að eiga afmæli á þessum einstaka degi. „En ég finn út frá viðbrögðum annarra að þetta er sérstakt. Það finnst öllum öðrum þetta svo merkilegt að maður hrífst með.“ Arnar Freyr er 36 ára í dag og fagnar því fertugsafmæli eftir fjögur ár, á sjálfan hlaupársdaginn. Hann segist sjálfur ekki vera mikið afmælisbarn. Salka Sól Eyfeld og Arnar Freyr Frostason á góðri stundu. „Alls ekki. Mér finnst yndislegt að eldast en kæri mig ekkert sérstaklega um hátíðarhöld. Það hentar mér mjög vel að díla við þetta á fjögurra ára fresti.“ Helgi Sæmundur Guðmundsson, hinn Úlfurinn, kemur líka við sögu. „Helgi á afmæli 28. febrúar og hann fær daginn alveg fyrir sig. Ég er alsæll með eitt lítið augnablik á miðnætti.“ Þótt Arnar Freyr sé ekki mikið afmælisbarn þá er Salka Sól Eyfeld eiginkona hans mikil stemmningskona. Því grunar hann að mikið standi til. „Salka er með einhverja óvissu planaða, ég finn það á mér. “ Dreifir fögnuðnum yfir allt árið Kristín Þórhallsdóttir dýralæknir og kraftlyftingakona fagnar stórafmæli í dag. Borgnesingurinn er fertug. „Það vekur athygli að eiga afmæli á hlaupársdegi, fólki þykir það merkilegt og hefur oft orð á því þegar ég þarf að þylja kennitöluna mína einhvers staðar. Er ég þá yfirleitt spurð hve gömul ég sé eða sem sagt hve marga afmælisdaga ég hafi átt,“ segir Kristín. Fólkinu í kringum hana finnist gaman að þekkja einhvern sem á 29. febrúar sem afmælisdag. Kristín er margverðlaunuð kraftlyftingakona og hefur verið á meðal tíu efstu í kjörinu á íþróttamanni ársins.Kraft.is „Þegar ég var að alast upp þá héldu foreldrar mínir yfirleitt upp á 28. febrúar fyrir mig þegar ekki var hlaupár, til að halda við mánuðinn. Ég tengi því alltaf við febrúar sem minn afmælismánuð og held enn þann dag í dag upp á 28. febrúar þegar sá 29. er ekki.“ En nú er stórafmæli. „Í ár verð ég fjörutíu ára á mínum tíunda afmælisdegi. Ekkert stórt er svo sem í bígerð á sjálfan afmælisdaginn nema að vera í fríi og fara út að borða með fjölskyldunni. Síðan flýg ég út í sólina í afmælisferð eftir helgi. Ég útiloka þó ekki að halda veislu út af þessu tilefni síðar á árinu en draumurinn er að geta bara haldið upp á áfangann með alla kyns viðburðum og upplifunum yfir árið.“ Stórafmæli á næsta hlaupári Pétur Mikel Guðmundsson, starfsmaður hjá VÍS og Víkingur með meiru, fæddist þennan dag árið 1988. Hann ætlar að fagna deginum í ár með rólegra móti. Á næsta hlaupári verður Pétur líkt og Arnar Freyr fertugur og stefnir þá að því að halda gott partý. Pétur lofar góðu partýi á næsta afmælisdegi. Pétur Mikael „Ég fagna alltaf 28 febrúar og hef gert frá því að ég var krakki. Ég á afmæli í febrúar, asnalegt að halda upp á það í mars. Með aldrinum hefur afmælis umstangið minnkað eins og oft vill verða. Verður eitthvað rólegt í ár en árið 2028 verð ég fertugur 29. feb, þá verður eitthvað húllumhæ.“
Tímamót Hlaupársdagur Ástin og lífið Mest lesið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Fleiri fréttir Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Sjá meira