Benítez segist vita af hverju Klopp er að hætta: „Ég þekki fólk í Liverpool“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. janúar 2024 13:30 Rafa Benítez og Jürgen Klopp hafa báðir gert Liverpool að Evrópumeisturum. getty/John Powell Rafa Benítez, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool, hefur gefið í skyn að hann viti meira um þá ákvörðun Jürgens Klopp að hætta hjá félaginu í vor en gefið hefur verið upp.
Á föstudaginn greindi Klopp frá því að hann myndi hætta sem stjóri Liverpool í vor. Hann sagði að hann væri að verða orkulaus. Klopp hefur stýrt Liverpool frá því í október 2015. Þegar Benítez, sem stýrir Celta Vigo í dag, var spurður út í brotthvarf Klopps sagði hann að það væri kannski eitthvað meira á bak við ákvörðun Þjóðverjans að hætta hjá Liverpool. „Ég bý að því að ég þekki fólk í Liverpool og já, ég veit hvernig þetta gerðist. Ég hef gott eitt að segja um Klopp því hann er vinur minn og samband okkar er gott. Hann hefur unnið ótrúlegt starf. Allt sem ég get sagt um Klopp og Liverpool er jákvætt,“ sagði Benítez. „Ég veit sitthvað innan úr félaginu. Hann fer og gefur því tíma til að endurskipuleggja sig sem er mjög þýskt því þeir gera þetta með fyrirvara svo þetta komi ekki upp úr þurru. Vonandi gerir Liverpool vel núna og líka þegar annar stjóri kemur. Ég vona að félaginu gangi allt í haginn.“ Benítez stýrði Liverpool á árunum 2004-10. Undir hans stjórn varð liðið Evrópumeistari 2005 og bikarmeistari 2006.
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira