Argur yfir reglunum eftir að Stones meiddist Sindri Sverrisson skrifar 28. desember 2023 08:31 John Stones meiddist í ökkla þegar hann renndi sér fyrir Beto, sóknarmann Everton, sem var rangstæður. Getty/Martin Rickett Meiðsli John Stones „líta ekki vel út“ að sögn knattspyrnustjóra Manchester City, Pep Guardiola, en Stones fór meiddur af velli í fyrri hálfleik í 3-1 sigrinum gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld.
Stones hefur verið óheppinn með meiðsli á þessari leiktíð því hann missti af byrjun tímabilsins vegna meiðsla í mjöðm. Leikurinn í gær var aðeins áttundi leikur hans í deildinni á þessari leiktíð. Stones meiddist þegar hann reyndi að verjast Beto, sóknarmanni Everton, sem var rangstæður en aðstoðardómarinn var ekki búinn að lyfta upp flaggi sínu. Það pirraði Guardiola auðsjáanlega eins og hann ræddi um við blaðamenn eftir leik: „Ég skil þetta ekki. Þetta var svo augljós rangstaða og núna er hann meiddur. Þeir segja „þetta er rétt Pep, þú hefur rétt fyrir þér…“ En það er of seint. Þetta er ekki þeim [dómurunum] að kenna. Reglurnar koma frá þeim sem stjórna. En ég skil þetta ekki,“ sagði Guardiola, en dómurum er uppálagt með að bíða með að flagga rangstöðu til að minnka líkurnar á að mistök komi í veg fyrir mark. Spurður út í meiðsli Stones hafði Guardiola litlar upplýsingar í höndunum: „Þetta lítur ekki vel út en við sjáum til. Þetta var ökklinn.“
Enski boltinn Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Íslenski boltinn Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Fótbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti Fleiri fréttir Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Sjá meira