Segir að Liverpool hafi verið heppið að missa af Caicedo og Lavia Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. desember 2023 11:31 Jürgen Klopp fékk fimm rétta á félagaskiptamarkaðnum í sumar. getty/Richard Sellers Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hrósar happi yfir því að liðið hafi misst af miðjumönnunum Moses Caicedo og Romeo Lavia.
Liverpool reyndi að kaupa tvímenningana í sumar en þeir fóru þess í stað til Chelsea fyrir samtals 168 milljónir punda. Það reyndust engin kjarakaup fyrir Lundúnafélagið. Caicedo hefur ekki náð sér á strik og Lavia á enn eftir að spila leik fyrir Chelsea vegna meiðsla. Liverpool keypti fjóra miðjumenn í sumar, Alexis Mac Allister, Dominik Szoboszlai, Ryan Gravenberch og Wataru Endo, sem hafa allir staðið fyrir sínu og gott betur. „Ýmislegt skrítið gerðist á félagaskiptamarkaðnum í sumar en hérna, okkar á milli, get ég sagt: Guð minn góður, vorum við ekki heppnir?“ sagði Klopp þegar hann hitti um sjö þúsund stuðningsmenn Liverpool á Anfield. „Við vissum það ekki á þeim tíma og okkur leið ekki þannig en já, ég er mjög ánægður að þetta gekk upp. En þú veist aldrei áður en lagt er af stað. Við áttuðum okkur á því að aðrir varnarsinnaðir miðjumenn vildu ekki koma til Liverpool, þú sérð hvað gerist og síðan fundum við Endo. Hann er frábær leikmaður.“ Liverpool er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en Chelsea í 12. sæti.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Sjá meira