Antony barmar sér yfir „ósanngjarnri“ gagnrýni Neville og félaga Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. desember 2023 16:02 Manchester United keypti Antony frá Ajax fyrir 85 milljónir punda í fyrra. getty/Robbie Jay Barratt Brasilíumaðurinn Antony hefur sent fyrrverandi leikmönnum Manchester United tóninn fyrir það sem honum finnst vera ósanngjörn gagnrýni á hans frammistöðu inni á vellinum.
Antony hefur ekki náð sér á strik í vetur og var meðal annars tekinn út úr leikmannahópi United vegna ásakana um að hafa beitt konur ofbeldi. Antony hefur ekki skorað í fjórtán leikjum í öllum keppnum á tímabilinu en þrátt fyrir það finnst honum hann fá ósanngjarna gagnrýni frá fyrrverandi leikmönnum United eins og til dæmis Gary Neville. „Ég sé ósanngjarna gagnrýni frá fyrrverandi leikmönnum liðsins og öðrum í fjölmiðlum og hún hefur áhrif á þúsundir stuðningsmanna og þeir gagnrýna mig meðal annars stundum þegar ég spila ekki,“ sagði Antony. „Ég sé þá aldrei koma með uppbyggilega gagnrýni sem hjálpar mér að verða betri leikmaður. Enginn þeirra hefur sent mér skilaboð til að kanna hvernig mér líður, sérstaklega í öllu sem ég hef gengið í gegnum.“ Antony segir einfalt fyrir aðra að gagnrýna sig og segir samfélagsmiðla hina mestu meinsemd. „Ég myndi vilja sjá hvernig þetta fólk sem kemur með ósanngjarna og illkvittna gagnrýni myndi standa sig í mínum sporum,“ sagði Antony. „Samfélagsmiðlar eru að skemma fótboltann og sannleikurinn skiptir engu máli lengur.“ Antony og félagar hans í United taka á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ Fótbolti Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Fótbolti Fleiri fréttir Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Sjá meira