Innlent

Unnið dag og nótt að byggingu varnargarðanna

Lillý Valgerður Pétursdóttir og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa
Arnar Smári Þorvarðarson, byggingartæknifræðingur hjá Verkís.
Arnar Smári Þorvarðarson, byggingartæknifræðingur hjá Verkís. Vísir/Arnar

Við Grindavíkurveg eru framkvæmdir í fullum gangi. Þar er unnið dag og nótt að því að reisa varnargarða sem eiga að vernda orkuverið í Svartsengi ef til eldgoss kemur. Varnargarðarnir eru þegar orðnir milli þrjú og fjögur hundruð metra langir.

„Byrjuðum bara hérna rétt eftir hádegi í gær. Og þurftum reyndar frá að hverfa eftir tæplega klukkutíma vinnu vegna þessa gass sem mældist. En byrjuðum svo aftur milli fimm og sex í gær og erum búin að vera hér að vinna í alla nótt með jarðýtur og gröfur,“ segir Arnar Smári Þorvarðarson, byggingartæknifræðingur hjá Verkís.

Mesta vinnan í dag hefur farið í varnargarðinn sem liggur með fram Grindavíkurvegi, eða Sundhnúksgarðinn.

„Við erum búin að vinna hérna kannski þrjú fjögur hundruð metra í þriggja metra hæð frá því í gærkvöldi,“ segir Arnar. Hann segir að stefnt sé á að byggja inn að Sýlingarfelli og loka garðinum þar. „Það er svona komið af stað en ekki lengra.“

Hversu mikið efni þurfið þið að koma með og hversu mikið af hrauninu á svæðinu getið þið notað af hrauninu sem er hérna?

„Það er erfitt og við viljum ekki raska það of mikið. Við reynum svona að draga það aðeins að okkur þeim megin sem ráðgert er að hraunið renni. Þá búum við líka til ákveðna rennslisleið fyrir hraun sem kemur að garðinum og nær þá að renna með fram honum,“ segir Arnar. 

„Og síðan eftir þörfum ráðgerum við þá og byrjum á því að byggja þriggja metra garð, viðmiðið, og svo kannski fimm og átta, ef við þurfum að hækka.“  

Arnar segir skipulagninguna á varnargörðunum byggja á reynslu síðustu gosa. „Það sýndi sig að menn gátu að einhverju leyti hægt á og beint rennsli í aðra átt en ef hraunið er mjög þunnfljótandi þá er illviðráðið. En meðan það er seigfljótandi er hægt að stýra því eitthvað,“ segir Arnar að lokum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×