Maddison ekki með Tottenham fyrr en á nýju ári Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. nóvember 2023 16:01 James Maddison sést hér liggja sárþjáður á vellinum eftir að hann meiddist á móti Chelsea. Getty/Alex Pantling Meiðsli James Maddison frá því á mánudagskvöldið eru það alvarleg að hann missir ekki aðeins af landsleikjum Englendinga heldur verður hann ekkert með Tottenham fyrr en í fyrsta lagi á nýju ári.
Ange Postecoglou, knattspyrnustjóri Tottenham, staðfesti þetta á blaðamannafundi í dag fyrir leik liðsins á móti Wolves um helgina. Hinn 26 ára gamli Maddison meiddist á ökkla í tapleiknum á móti Chelsea sem var fyrsta tap Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Maddison hefur skorað þrjú mörk og gefið fimm stoðsendingar í ellefu leikjum með Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Það eru erfiðir tímar fram undan hjá Tottenham því varnarmaðurinn Micky van de Ven verður líka frá keppni þar til á nýju ári og brasilíski framherjinn Richarlison er líka meiddur. „Meiðsli Maddison eru mun verri en við héldum fyrst. Hann kom út af eftir ökklameiðsli en var svo slæmur daginn eftir að við sendum hann í myndatöku,“ sagði Ange Postecoglou. Cristian Romero og Destiny Udogie missa báðir af leiknum á móti Úlfunum þar sem þeir fengu rautt spjald í Everton leiknum og taka því út leikbann. BREAKING : James Maddison is set to be out until January with an ankle injury Micky van de Ven will also be out for a few months with a hamstring injury.pic.twitter.com/O2jZcLnMTJ— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) November 10, 2023
Enski boltinn Mest lesið Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Haaland sló met Agüero Enski boltinn Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Sjá meira