Hægt að nota pastavatn til að hita upp eldhúsið Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 9. nóvember 2023 14:56 Heitt vatn fyrir íbúa og fyrirtæki á Reykjanesi er unnið í jarðvarmavirkjuninni í Svartsengi. Vísir/Sigurjón HS Veitur hafa birt ábendingar til íbúa á Suðurnesjum vegna mögulegs langtíma þjónusturofs veitukerfa vegna náttúruhamfara. Fólki er meðal annars bent á að lágmarka notkun þvotta-, og uppþvottavéla og draga fyrir glugga þegar ekki er sólskin.
Í tilkynningu á vef Hs Veitna kemur fram að samfélagslega mikilvægir innviðir líkt og raforka, heitt vatn og neysluvatn gætu verið í hættu ef til eldgoss á Reykjanesi kemur. Heitt vatn fyrir íbúa og fyrirtæki á Reykjanesi er unnið í jarðvarmavirkjuninni í Svartsengi. Neysluvatn flestra íbúa og fyrirtækja á Reykjanesi kemur úr vatnsbólum í Lágum sem er skammt vestan við Svartsengi. Rafbílar séu fullhlaðnir og ekki nota fjöltengi með rafmagnsofni Komi til þess að hitaveitan detti út og þá til lengri tíma er mikilvægt að hafa í huga að dreifikerfi rafmagns er ekki byggt fyrir það álag að allir íbúar kyndi húsin sín með rafmagni. Því er mikilvægt að íbúar takmarki raforkunotkun þannig að hvert heimili noti að hámarki 2.500 W (2,5 kW) til húshitunar. Í færslu HS veitna eru nokkrar ábendingar sem ber að hafa í huga þegar rafmagnsbúnaður er valinn og um notkun á honum. Þar kemur meðal annars fram að betra sé að nota fleiri minni ofna en einn stóran og að aldrei skuli setja fatnað eða annað til þerris á rafmagnsofna. Ekki skuli nota fjöltengi þegar rafmagnsofnar eru settur í samband. Þá er mikilvægt að hafa rafbíla ávallt fullhlaðna og bensínbílar með fulla tanka. Kerfið ræður ekki við heimahleðslur á bílum og verður því einungis hægt að hlaða bíla á hraðhleðslustöðvum en ekki við heimili. Bent er á að mikilvægt sé að forgangsraða raforkunotkun og taka út alla óþarfa notkun líkt og: Rafhitaða heita potta Saunaklefa, gufuböð. Heimahleðslur rafbíla Allir hitagjafar sem eru utanhús, svo sem hitamottur í gangstétt eða í plönum og innrauðir hitagjafar til notkunar utanhúss. Betra að láta pastavatnið kólna en að hella því í vaskinn Þá eru tiltekin nokkur dæmi um hvernig megi lágmarka notkun annara raftækja og nota orkuna vel. Bent er á að til dæmis sé betra að láta pastavatnið kólna frekar en að hella því í vaskinn. Þá nýtist varminn úr því til að hita upp eldhúsið. Einnig er mælt með að slökkva á ofnum eða öðru orkufreku álagi á meðan verið er að elda. Lágmarka notkun þvotta-, og uppþvottavéla. Það munar mjög miklu að þvo á 60°C í stað 90°C. Sama gildir um uppþvottavélar. Þurrkarar eru mjög orkufrekir og best að nota þá ekki ef rafmagn er af skornum skammti. Nota eldunartæki utanhúss eins og gasgrill eða prímus. Alls ekki nota þessi tæki innanhúss. Takmarka skal notkun ljósa. Nota þá helst ljósgjafa sem nýta orku sem best. Þetta á til dæmis við um nýrri LED ljós. o Til þess að takmarka varmatap er nauðsynlegt að loka gluggum, það getur verið nauðsynlegt að þétta opnanleg fög meira en venjulega til að draga enn frekar úr varmatapi. Það er sömuleiðis gott að nota gluggatjöldin og draga fyrir glugga þegar ekki er sólskin. Loka inn í herbergi sem eru ekki í notkun og þarf ekki að halda heitum. Undirbúningur fyrir mögulegt rafmagnsleysi Í leiðbeiningunum er farið yfir mikilvæg viðbrögð sem taka mið af rafmagnsleysi. Fólki er bent á að hafa svokallaðan neyðarkassa reiðubúinn. Önnur atriði snúa að rafmagnstækjum sem kunna að hafa verið í gangi þegar rafmagnið fór af og eru þvottavél og þurrkari sérstaklega tiltekin. Sama er með önnur tæki sem kunna að skapa hættu þegar þau fara í gang þegar rafmagn kemst á að nýjuÞá er nauðsynlegt að huga að kæli og frystitækjum ef gera má ráð fyrir að rafmangsleysi verði viðvarandi. Hér má nálgast leiðbeiningarnar í prentútgáfu.
Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Reykjanesbær Orkumál Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira