Seljum ungmennum lummur og koffín en í fordómafullri vanþekkingu svertum hampinn Gunnar Dan Wiium skrifar 8. nóvember 2023 12:01 Ég lít í kringum mig og mér finnst samfélagið og lög þess og reglur skrítin, undarleg. Ég fer í hverfissjoppuna sem lifir á hádegispásu nemenda gagnfræðaskólans við hliðin á og þar selja þeir auðvitað slísi burgers og chips og kit-kat en líka allskonar annað. Þeir selja sígarettur og vindla og svakalegt úrval á lummum og veipdrasli, þeir selja meira að segja tóma ziplock poka við hliðina á tannkreminu, (kannski hugsa þeir að gott sé að eiga litla ziplock poka til að safna stökum tölum og smellum sem fylgja með nýjum skyrtum og jökkum.) Fyrir innan lummuborðið er svo spilavítið og þar hanga fárveikir spilafíklar sem eru margir hverjir búnir að spila frá sér fjölskyldur, sjáfsvirðinguna og mannorðið. Ég lít í kringum mig og sé fyrirtæki eins og Svens hasla sér völl með sænskum fánalitum á risastórum skiltum um allan bæinn eins og ekkert sé eðlilegra, þeir meira segja auglýsa í auglýsingahléi gettu betur eins og það sé staður og stund. Koffíndrykkir í hundruðum milligramma flokknum eru seld ungmennum og svo þegar þau geta ekki sofið er þeim bara gefið melatonin þ.e.a.s. ef þau eru ekki með uppáskrifuð svefnlyf við svefnleysisaukaverkunum við adhd lyfjunum sem þau neyðast til að taka sem “viðeigandi” lyfjagjöf við ofvirkni og athyglisbrest. Ríkið sér svo um að skaffa fólki alkóhól því á bakvið þá neyslu er svokölluð “menning” og í henni skálum við og tökum trúnna á bakkus konung, fyrir okkur er eðlilegt að drekka leysiefni og verða fyrir eitrunaráhrifum, hindra endurupptöku boðefna og fyrir vikið raska eðlilegri og heilbrigðri boðefna framleiðslu með viðeigandi þvinku, þunglyndi og timburmönnum, allt partur af prógramminu og alls ekkert óeðlilegt þar. Við hristum þetta bara af okkur og skellum okkur á Kentucky og gúlp-þömbum tveggja lítra kókflöskur og svo kokgleypum stóran bragðaref fyrir svefninn. Þetta er það sem ég sé, meðal annars. Ég sé líka að CBD vörur og hráhamp sem Matvælastofnun ríkisins gaf grænt ljós fyrir alls ekki svo löngu síðan til innflutnings allt í einu stöðvaðan í tollinum og vörur innflutningsaðila gerðar upptækar án skýringa bara því starfsmaður á plani fannst það bara einn daginn. Ég sé og upplifi fordóma í garð undraplöntunar Kannabis og bera svokallaðir sérfræðingar á vegum hins opinbera yfirleitt fyrir sig sömu rökin sem eru að það sé einfaldlega skortur á rannsóknum sem gerir þetta mál með CBD og aðra kannabínóða erfitt viðureignar. Þessi rök “sérfræðingana” eru svo röng því rannsóknir sem gerðar hafa verið á Kannabis síðustu 30 ár eða svo skipta tugum þúsunda. Þessar rannsóknir hafa svo leitt til þess að lögleiðing á Kannabis hefur átt sér stað út um allan heim bæði vestan hafs og austan. Sama gildir um rannsóknir á tóbaki, sykri, lummum og koffíni og fituríkum mat og alkóhóli og svo framvegis og framvegis, þær skipta einnig tugum ef ekki hundruðum þúsunda. Samt sem áður fara unglingarnir í gagnfræðaskólanum í næstu götu við mig í hádegishléinu og kaupa sér 200mg koffín nokkóa og lummur og big chrunchy Lion-bar og slefa svo yfir spilakassan. Svo fara þau út og veipa blý og nikkel í stórhættulegu magni og fá fyrir vikið framheilaskaða sem rannsóknir sýna að sé óafturkræfur. Þetta er allt í boði þeirra laga og reglna sem gilda, löglegt sjálfsvíg fyrir börn, unglinga og fullorðina í slow motion í nafni hefða, menningar, heimsku og spillingar. Hvað varðar kannabis þá er kannski best að útskýra kerfið sem kallast á ensku Endocannabinoid system, skammstafast sem ECS. Á íslensku myndi það þýðast sem Endokannabínóðakerfið og því skammstafast sem EKK. Kerfið sem um ræðir er flókið merkjakerfi frá frumunum sem samanstendur af endókannabínóðum, ensímum og kannabínóða-móttökum, sem hafa stjórn á ýmissi starfsemi í mannslíkamanum. Ber að nefna í þessu samhengi hjálp við svefn, lund, matarlyst og meltingu, minni, bólgumyndun, húðvandamál, endurheimt og frjósemi. Þessar flóknu tengingar finnast í heilanum, vefjum og kirtlum og í öllum aðal líffærum okkar. Kerfið var uppgötvað af tékkneskum vísindamanni árið 1992 í Ísrael og við þessa uppgötvun komust vísindamenn að því að líkaminn framleiðir sína eigin kannabínóða í margvíslegum tilgangi sem kerfið, ECS er hannað til að taka á móti. CBD og aðrir kannbínoðar hafa sýnt sig að hafa stór heilsufarsleg áhrif á fólk sem þjáist af hinum og þessum kvillum. Allt frá alvarlega flogaveikum einstaklingum, parkinson og krabbameinssjúklingum niður í skilvirkari endurheimt íþróttafólks sökum sterks mótvægis við bólgumyndun í líkamanum. Listinn er orðin langur af fólki hér á landi sem hefur hlotið bót meina sinna og er því komin reynsla af notkun kannabínóð sem styður þessar fullyrðingar hér að ofan. Síðustu hundrað ár eða svo hefur hampurinn, plantan verið svert og talin hættuleg og ólögleg. Þá er ég ekki aðeins að tala um Indica afbrigði plöntunar heldur líka ræktun og öll notkun á Iðnaðarhampi sem fyrir áróðursherferð há kapítalískra hagsmunaafla var gríðarlega útbreidd og áberandi sem hráefni í allskonar iðnaði. Má nefna í því samhengi í iðnaði sem snéri að allskonar textíl framleiðslu og pappír svo eitthvað sé nefnt. Þegar stórir hagsmunaaðilar innan pappírsiðnaðarins, stáliðnaðar, plast og pólyester komu saman í einskonar samkurli með íhaldsömu og valdamiklu samfélagi bindindishreyfinga í Bandaríkjunum upp úr 1900 fór af stað mikil viðhorfsbreyting í garð plöntunnar sem svo nú loksins virðist vera í sterkum og jákvæðum viðsnúning. Núna í ár eru um 3 ár síðan ræktun iðnaðarhamps varð lögleg aftur á Íslandi og síðan þá hefur orðið mikil vitundarvakning í garð hampsins sem og heilsufarslegum ávinning af notkun kannabínóða. Ræktun er orðin útbreidd og þó svo ræktendur séu mis reynslumiklir og misskilvirkir hvað varðar notkun og vinnslu hampsins. Sumir eru komnir lengra en aðrir og með skýr markmið hvað varðar úrvinnslu og sölu afurða á meðan aðrir eru að fikra sig áfram með óljós markmið þrátt fyrir gríðarlegan áhuga á þeim möguleikum sem afurðin býður upp á. Sama hve skilvirk úrvinnslan er að hverju sinni þá situr alltaf umhverfisþátturinn eftir því í raun má segja að hampurinn sé að binda um 20 sinnum meira kolefnum en hefðbundin skógrækt og að ca 1 hektari í ræktun sem tekur um 3-4 mánuði sé nóg til að kolefnisjafna einn íslending miðað hvað við losum í dag. Og hvað þessa gríðarlegu kolefnisbindingu hampsins varðar þá er einnig svo afar undarlegt að liðið sem lofar hinu og þessu eftir hin og þessi ár í kolefnisjöfnu Íslandi virðist ekkert kynna sér ofur eiginleika hampsins í þeim efnum. Reikningsdæmið er einfalt, til að kolefnisjafna Ísland eins og það leggur sig þarf aðeins að rækta í eitt tímabil um einn hektara per íslending og málið er dautt, loforð orðin að veruleika aldrei þessu vant. Ég lít í kringum mig og sé skrítið samfélag, ég sé skrítin og óheilbrigð lög sem gera heilbrigða einstaklinga að lögbrjótum. Ég sé heilbrigt fólk fara á skjön við lög og reglur því það fylgir sannfæringu sinni um hvað er raunverulega rétt og heilbrigt. Þessi hegðun skapar hins vegar klofning í samfélagsvitundinni og frammkallar skömm sem hefur í raun engan rétt á sér. Ég vill eindregið hvetja til byltingar sem snýr að sýn á sannleikan og afturhvarfs til náttúrulegra efna. Kannabis er ekki hættuleg jurt. Kannabis er gjöful og nærandi. Hún er hráefni í formið sem skýlir okkur gegn veðri og vindum. Hún bindur eitrið sem við spúum frá okkur. Kannabis er plöntulæknirinn sem læknar kvilla vitundar og líkamans. Maðurinn hefur vitað þetta í þúsundir ára og komin er tími til að við nýtum okkur þessa vitneskju í nafni lýðheilsu og umhverfisverndunar. Fyrir þau ykkar sem hafið áhuga á málefnum tengt hampi vill ég benda á https://www.hampfelagid.is/. Þar sem hægt er að skrá sig í félagið gegn vægu ársgjaldi. Höfundur starfar sem búðarkall og þáttarstjórnandi Þvottahússins og Hampkastsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Dan Wiium Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Skoðun Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Sjá meira
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun