Shearer og Owen hafa ekki talast við í fjögur ár Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. október 2023 16:32 Alan Shearer og Michael Owen meðan allt lék í lyndi. getty/Graham Chadwick Michael Owen hefur ekki rætt við Alan Shearer síðan þeir deildu opinberlega vegna ævisögu þess fyrrnefnda fyrir fjórum árum.
Shearer stýrði Newcastle United undir lok tímabilsins 2008-09 en mistókst að bjarga liðinu frá falli úr ensku úrvalsdeildinni. Owen var þá leikmaður Newcastle og fannst hann hafa verið gerður að blóraböggli vegna ófara liðsins. Eftir að Newcastle féll segist Owen hafa komist að því Shearer hafi verið ósáttur við hann, fundist að hann væri ekki tilbúinn að spila og fórna sér fyrir Newcastle í fallbaráttunni því hann væri eingöngu að hugsa um næsta samning. Þeir Owen og Shearer deildu svo fyrir opnum tjöldum eftir útgáfu ævisögu þess fyrrnefnda, Reboot - My Life, My Time. Síðan þá hafa þeir ekki talast við. „Ég hef ekki talað við Alan Shearer síðan hann gagnrýndi bókina mína,“ sagði Owen við DAZN. „Alan vinnur hjá BBC en ég hjá öðrum miðlum þannig að leiðir okkar liggja sjaldan saman. Ég myndi heilsa honum og taka í spaðann á honum en við höfum ekki talað saman síðan þá.“ Owen og Shearer léku saman hjá Newcastle tímabilið 2005-06 og þá voru þeir samherjar í enska landsliðinu á árunum 1998-2000. Þeir léku meðal annars saman í framlínu Englands á HM 1998 og EM 2000.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Sjá meira