Segir að leikmenn sem geri sér upp höfuðmeiðsli séu að eyðileggja fótboltann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. október 2023 11:30 Að mati Jamies Carragher gerði Nicolo Zaniolo sér mat úr samstuði við Nayef Aguerd í leik Aston Villa og West Ham United. getty/Nathan Stirk/ Jamie Carragher segir að leikmenn sem gera sér upp höfuðmeiðsli séu eitt helsta mein fótboltans.
Í leik Aston Villa og West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í gær sakaði Carragher Villa-manninn Nicolo Zaniolo um að gera sér upp höfuðmeiðsli. Atvikið átti sér stað í seinni hálfleik. Villa tapaði boltanum en dómarinn David Coote stöðvaði leikinn svo skyndisókn West Ham varð að engu. Carragher segir að þetta sé orðið vandamál í fótboltanum í dag, að leikmenn geri sér upp höfuðmeiðsli til að leikurinn verði stöðvaður. Hann segir að ekki eigi að stöðva leikinn nema augljóst sé að viðkomandi leikmaður sé raunverulega meiddur. „Ég er kominn með nóg af þessu. Leikmenn mjólka höfuðmeiðsli. Dómarinn veit það kannski ekki en þarna sá hann atvikið og veit að ekkert er að,“ sagði Carragher. „Þetta er að eyðilegggja leikinn. Leikmenn leggjast í jörðina þegar þeir tapa boltanum á hættulegum stað. Það var ekkert að þessu. Þetta er kjaftæði. Hann veit að það verður að stöðva leikinn. Dómaranum finnst hann verða að flauta. Þessu verður að linna. Þetta gerist of oft. Þessu var komið á til að hjálpa leikmönnum en nú misnota þeir þetta,“ bætti Carragher við. Villa vann West Ham, 4-1. Douglas Luiz (2), Ollie Watkins og Leon Bailey skoruðu mörk Villa-manna sem eru í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, aðeins tveimur stigum frá toppnum.
Enski boltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ Fótbolti Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Fótbolti Fleiri fréttir Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Sjá meira