Ratcliffe finnst kaupin á Casemiro dæmi um slæma kaupstefnu United Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. október 2023 12:01 Casemiro hefur ekki náð sér á strik í vetur eftir að hafa verið einn besti leikmaður Manchester United á síðasta tímabili. getty/Simon Stacpoole Sir Jim Ratcliffe, sem mun væntanlega eignast fjórðungshlut í Manchester United, finnst félagið hafa farið illa að ráði sínu í leikmannakaupum á undanförnum árum. Að hans mati eru kaupin Brasilíumanninum Casemiro eitt dæmi um það.
Þrátt fyrir að hafa eytt fúlgum fjár í leikmannakaup undanfarin áratug hefur United ekki verið nálægt því að berjast um Englandsmeistaratitilinn síðan Sir Alex Ferguson hætti hjá félaginu 2013. The Guardian greinir frá því að þegar Ratcliffe heimsótti United í mars síðastliðnum hafi hann nefnt kaupin á Casemiro sem dæmi um hversu mistækt félagið hefur verið á félagaskiptamarkaðnum undanfarin ár. United keypti Casemiro frá Real Madrid fyrir sextíu milljónir punda í fyrra. Þrátt fyrir að vera þrítugur skrifaði Brassinn undir fjögurra ára samning við United. Casemiro átti afbragðs gott tímabil með United í fyrra en hefur ekki verið jafn öflugur það sem af er þessu tímabili. Ratcliffe vill fá að stjórna fótboltamálum hjá United og hefur meðal annars áhuga á að ráða Michael Edwards sem yfirmann knattspyrnumála hjá félaga. Hann starfaði áður hjá Liverpool og er eignaður heiðurinn af því að hafa meðal annarra fengið Mohamed Salah og Virgil van Dijk til félagsins. Ratcliffe er einnig eigandi franska úrvalsdeildarfélagsins Nice sem hefur verið duglegt að fá til sín eldri leikmenn, meðal annars markvörðinn Kasper Schmeichel. Nice borgaði þó lítið eða ekkert fyrir leikmennina og þeir fengu ekki langa samninga.
Enski boltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti England - Argentína | Messi mætir ensku ljónunum í fyrsta sinn Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ Fótbolti Fleiri fréttir Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Sjá meira