Everton með hærra xG í vetur en Manchester City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. október 2023 14:30 Erling Haaland var ekki nálægt því að skora fyrir Manchester City á móti Arsenal um helgina. Getty/Alex Pantling Manchester City liðið átti ekki góðan leik á móti Arsenal í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar um helgina en það er líka óhætt að segja að leikurinn hafi verið lítil skemmtun.
Arsenal vann leikinn á sigurmarki Gabriel Martinelli á 86. mínútu. City menn voru með 0.47 í xG í leiknum á móti 0,46 hjá Arsenal. Markakóngurinn Erling Haaland skapaði sér ekkert í leiknum en hann var með 0,00 í xG. City liðið var líka undir einum í xG í tapinu á móti Wolves í deildarleiknum á undan sem liðið tapaði 1-2 á útivelli. xG Manchester City í þeim leik var aðeins 0,77. xG er tölfræðiþátturinn áætluð mörk. Knattspyrnutölfræðingar hafa notað tölfræði og markaskor síðustu áratuga til að finna það út hverjar séu líkur á marki í hverju færi og í hverju skoti. xG, eða áætluð mörk er því tilraun til að reikna út hversu mikið liðin er að skapa sér af góðum færum. Því betra færri því hærra xG í skotinu. Þessar tvær slöku sóknarframmistöður City hafa þýtt að báðir leikirnir töpuðust og liðið er nú dottið niður í þriðja sæti deildarinnar á eftir Tottenham og Arsenal. Það sem er kannski mest sláandi er að Everton, sem er í sextánda sæti í deildinni, er nú með hærra xG á tímabilinu heldur en Englandsmeistararnir. Everton er með 16,43 í xG í fyrstu átta umferðunum en Manchester er bara með 15,66 í xG. City hefur skorað sautján mörk en Everton er með níu mörk skoruð. Everton vann 3-0 sigur á Bournemouth um helgina og voru Everton menn með 2,09 í xG í leiknum. View this post on Instagram A post shared by ESPN FC (@espnfc)
Enski boltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Sjá meira