Carragher segir hæpið að Liverpool berjist um titilinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. október 2023 11:31 Liverpool er með spennandi lið að mati Jamies Carragher en ekki nógu sterkt til að berjast um Englandsmeistaratitilinn. getty/John Powell Jamie Carragher, sparkspekingur og fyrrverandi leikmaður Liverpool, er efins um að liðið geti barist um Englandsmeistaratitilinn. Hann segir að Liverpool þurfi að styrkja tvær stöður til þess.
Liverpool gerði 2-2 jafntefli við Brighton á útivelli í gær. Liðið er í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sautján stig, þremur stigum á eftir Tottenham og Arsenal sem eru í efstu tveimur sætunum. Þrátt fyrir góða stöðu í deildinni hefur Carragher efasemdir um að Liverpool geti orðið Englandsmeistari. „Hvort þeir geti unnið stærsta titilinn sem er enska úrvalsdeildin held ég að verði erfitt. Liverpool gæti gert það á næsta tímabili með tveimur viðbótum,“ sagði Carragher. „Ég held að Liverpool vanti topp miðjumann og kannski annan varnarmann. Þessar stöður verða fylltar, hvort sem það verður í janúar eða í sumar, og ég held að þeir verði betur í stakk búnir til að berjast um Englandsmeistaratitilinn á næsta tímabili.“ Þrátt fyrir að Carragher telji að leikmannahópur Liverpool sé ekki alveg nógu sterkur til að berjast um enska meistaratitilinn er hann ánægður með hvernig liðið hefur byrjað tímabilið. „Byrjunin á tímabilinu hefur verið lofandi. Og það lítur þannig út að liðið sem hann [Jürgen Klopp] er að smíða geti vonandi afrekað það sem fyrri liðin hans hafa gert,“ sagði Carragher. Næsti leikur Liverpool er grannaslagur gegn Everton laugardaginn 21. október.
Enski boltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Sjá meira