Kanadamenn gruna indversk stjórnvöld um græsku Jón Þór Stefánsson skrifar 18. september 2023 23:18 Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, segir leyniþjónustuna hafa rannsakað tengsl Indverskra stjórnvalda og morðisns á Nijjar. EPA Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, segir trúverðugar heimildir benda til tengsla milli stjórnvalda í Indlandi og morðs á kanadískum ríkisborgara. Indverskum diplómata í Kanada hefur verið vísað frá landi vegna málsins.
AP fjallar um málið. Hardeep Singh Nijjar var kanadískur ríkisborgari og leiðtogi innan Sikh-trúarhópsins. Hann var myrtur af tveimur grímuklæddum byssumönnum í kanadísku borginni Surrey í júní síðastliðnum. Hann hafði barist fyrir sjálfstæði Khalistan, sérstaks ríkis Sikh-trúaðra. Trudeau segir leyniþjónustu Kanada hafa rannsakað tengsl Indverskra stjórnvalda og morðisns á Nijjar. Hann segist hafa minnst á drápið við forsætisráðherra Indlands, Narendra Modi, á G-20 fundi í síðustu viku. Hann hafi sagt Modi að öll möguleg tengsl málsins við indversk stjórnvöld væru óásættanleg. Þá hafi hann beðið um aðstoð við rannsókn málsins. Í kjölfarið hefur utanríkisráðherra Kanada, Mélanie Joly greint frá því að yfirmaður Indversku leyniþjónustunnar í Kanada hafi verið rekinn úr landi. „Ef þetta reynist satt þá er um að ræða stórt brot á fullveldi okkar, og á meginreglu þess hvernig þjóðir umgangast aðrar þjóðir,“ er haft eftir Joly.
Indland Kanada Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Fleiri fréttir Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Sjá meira