Erlent

Mæðrum haldið föngnum ef þær geta ekki borgað sjúkra­hús­reikninginn

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Aðgerðasinnar segja verklagið viðgangast víða í Úganda en því sé oft beint gegn mæðrum.
Aðgerðasinnar segja verklagið viðgangast víða í Úganda en því sé oft beint gegn mæðrum. Getty/LightRocket/SOPA Images/Sally Hayden

Mannréttindasamtök og aðgerðasinnar í Úganda vonast til þess að dómsmál sem tekið verður fyrir nú í ágúst verði til þess að binda enda á það verklag sjúkrahúsa að halda einstaklingum föngum sem ekki hafa gert upp reikninginn vegna dvalar sinnar.

Verklagið er oft viðhaft gagnvart nýjum mæðrum og umrætt mál var höfðað af tveimur konum sem báðum var haldið gegn vilja sínum í margar vikur þegar þær gátu ekki greitt fyrir þá þjónustu sem þær höfðu fengið. 

Báðar leituðu upphaflega á sjúkrahús í eigu hins opinbera en var vísað á einkasjúkrahús í kjölfar vandamála í fæðingu. Þar var þeim haldið þar sem þær gátu ekki borgað.

Aðgerðasinnar segja verði gæta fólksins, sem fái ekkert að borða á meðan það er í haldi og sé látið sinna ýmsum störfum til að greiða skuldir sínar, til dæmis þrífa. 

Einstaka mál hafa ratað fyrir dómstóla, sem hafa komist að þeirri niðurstöðu að brotið hafi verið á viðkomandi einstaklingum, en málin hafa ekki leitt til lagabreytinga.

Vonir standa til að málið sem nú á að taka fyrir muni leiða til þess að dómstólar taki afdráttarlausa afstöðu gegn verklaginu.

Önnur konan, nefnd NS í gögnum málsins, var send á St. Francis Hospital Nkokonjeru þegar í ljós kom að hún þurfti að gangast undir keisaraskurð. Sjúkrahúsið er rekið af kaþólskum samtökum, sem njóta stuðnings ýmissa erlendra samtaka og opinberra stofnana.

NS var rukkuð um 590 þúsund úganska skildinga fyrir þjónustuna en gat ekki borgað. Til samanburðar má nefna að um helmingur einstaklinga á vinnumarkaði í Úganda er með um 200 þúsund skildinga eða minna í mánaðarlaun.

NS, sem var 16 ára móðir þegar hún átti seinna barnið, var haldið þar til samtökin Initiative for Social and Economic Rights greiddi reikninginn.

Hér má finna ítarlega umfjöllun Guardian  um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×