FÍB þjónustar vegaaðstoð Toyota, Lexus og BNB Toyota á Íslandi 4. júlí 2023 11:23 Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi (t.v.), og Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, við undirritun samningsins milli Toyota á Íslandi og FÍB. Samningurinn felur í sér að vegaaðstoð fylgir fyrir umráðamenn sem keyra um á nýjum bíl sem fluttur er inn af Toyota á Íslandi eða notuðum bíl sem seldur er undir vörumerkjum Betri notaðra bíla. Frá og með 1. júlí mun Toyota á Íslandi bjóða viðskiptavinum Toyota, Lexus og Betri notaðra Bíla vegaaðstoð í 12 mánuði.
Í dag var undirritaður samningur milli Toyota á Íslandi og Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Samningurinn felur í sér að vegaaðstoð fylgir fyrir umráðamenn sem keyra um á nýjum bíl sem fluttur er inn af Toyota á Íslandi eða notuðum bíl sem seldur er undir vörumerkjum Betri notaðra bíla.Þetta á ekki við um bílaleigur, nema þá KINTO bílaleiguna.Vegaaðstoðin felur meðal annars í sér: Aðstoð ef bíll verður straum- eða bensínlaus Aðstoð við dekkjaskipti ef dekk springur Flutning á verkstæði ef bíll bilar Flutning rafmagnsbíls heim eða á næstu hleðslustöð ef rafmagnið klárast Einnig fylgir FÍB aðild í 12 mánuði fyrir umráðamann bifreiðar, honum að kostnaðarlausu. Hægt er að finna upplýsingar um FÍB aðild hér. „Okkur þykir mikill fengur að þessu samstarfi við FÍB sem við sjáum sem enn eina viðbótina við öfluga þjónustu við viðskiptavini okkar. Við viljum ekki aðeins selja góða vöru heldur viljum við einnig að viðskiptavinurinn eigi greiðan aðgang að góðri þjónustu. Samstarfið við FÍB gerir okkur kleift að ganga enn lengra í þá átt,“ segir Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi. „FÍB fagnar samstarfi við Toyota á Íslandi sem hefur verið leiðandi fyrirtæki í bílgreininni í áraraðir. Tilgangur FÍB er að efla umferðaröryggi, umferðarmenningu og gæta hagsmuna bíleigenda. Félagar í FÍB eru nú um 19.000 og samstarfið við Toyota mun efla og styrkja félagið til að uppfylla kröfur vegfarenda um þjónustu og öryggi,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.Söluaðilar Toyota, Lexus og BNB veita nánari upplýsingar um Vegaaðstoð Toyota, Lexus og BNB.
Bílar Ferðalög Umferð Mest lesið Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Viðskipti erlent Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Viðskipti innlent Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Viðskipti innlent Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira