Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Frá því ég man eftir mér hef ég verið algjör A-týpa þegar kemur að svefnvenjum. Um áramótin ákvað ég að taka heilsuna aðeins fastari tökum og fór því að koma mér upp enn betri rútínu í kringum svefninn þar sem það er búið að vera mikið um að vera síðustu mánuði eftir að við fjölskyldan fluttum til Orlando þar sem við í Sahara erum að setja upp skrifstofur. Núna vakna ég flestalla daga klukkan fimm og fæ þá smá tíma fyrir sjálfan mig til að keyra daginn í gang á meðan fjölskyldan sefur.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
Ég er farinn að byrja alla morgna á því að fara í klukkutíma göngutúr um hverfið þar sem ég nýti tímann til að hringja heim og taka örfundi með stjórnendum Sahara heima á Íslandi.
Tímamismunurinn kemur sér vel þar sem það er allt komið á fullt á íslensku skrifstofunni þegar klukkan slær fimm í Orlando.
Þess á milli finnst mér einnig gott að taka pásu frá símtölunum og er þá duglegur að hlusta á hlaðvörp og hljóðbækur sem tengjast þeim verkefnum sem ég er að vinna að hverju sinni; í bland við eitthvað léttara sem gefur manni tækifæri á að dreifa huganum aðeins frá vinnunni sem er mikilvægt inn á milli.
Eftir göngutúrinn þá gef ég mér yfirleitt klukkutíma til að svara tölvupóstum og skrifa niður þau verkefni sem ég ætla að leggja áherslu á yfir daginn, áður en krakkarnir vakna klukkan sjö.“
Hvaða áhugamál finnst þér skemmtilegust á sumrin?
„Aðaláhugamál mitt á sumrin er klárlega að spila golf. Ég myndi gjarnan vilja hafa meiri tíma til að spila og æfa mig en ég er ekki eins laus við og þegar ég var að alast upp; þá var mér skutlað snemma á morgnana á Korpuna eða í Grafarholtið og sóttur seint á kvöldin.
En núna, eftir að við fluttum til Orlando, þarf maður að fara að koma sér aftur af stað því þar er engin afsökun fyrir því að vera ekki að spila golf að minnsta kosti einu sinni í viku. Það gengur eiginlega ekki að vera með hærri forgjöf í dag en þegar ég flutti út!
Fyrir utan golfið þá finnst mér ótrúlega gaman að ferðast með fjölskyldu og vinum. Það jafnast ekkert á við það að ferðast í kringum landið og upplifa alla þá náttúrufegurð sem Ísland hefur upp á að bjóða. Síðustu tvö ár höfum við fjölskyldan komið heim yfir sumartímann en veðurguðirnir mættu samt alveg vera aðeins meira næs við okkur, minni rigningu, meiri sól takk!
Stefnan er því sett á Ameríku-reisu næsta sumar því við ætlum okkur að nýta tímann vel á meðan við erum búsett úti til að upplifa og ferðast um Ameríku.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Verkefnin hjá Sahara eru mörg og fjölbreytt, en það er einmitt það sem gerir vinnuna svo skemmtilega. Ásamt því að leiða uppsetningu á bandarísku skrifstofunni þá tók ég nýverið við sem framkvæmdastjóri Sahara á Íslandi. Að samtvinna þessar tvær stöður var vissulega áskorun en ég þrífst vel í þannig umhverfi enda með mikið keppnisskap.
Fókusinn hefur því verið á verkefni sem snúa að Sahara, en þökk sé frábærum stjórnendum og starfsfólki Sahara þá hefur tekist vel að hrinda af stað spennandi verkefnum. Heimur stafrænnar markaðssetningar sefur aldrei og því er mikilvægt að vera á tánum til að vera undirbúinn til að takast á við þær áskoranir sem framundan eru og geta ávallt boðið viðskiptavinum okkar upp á það nýjasta og besta í þessum efnum.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Ég hef ávallt tileinkað mér gott skipulag og finnst nauðsynlegt að það sé til staðar til að halda góðri yfirsýn, enda er maður oftar en ekki með marga bolta á lofti í einu og því auðvelt að missa tempóið þegar yfirsýnin hverfur.
Uppi í Sahara er ég oft kallaður „Siggi Asana“ því ég á það til að „Asana“ yfir mig þegar kemur að því að grúska í kerfinu og stilla upp ferlum og sniðmátum fyrir hin ýmsu verkefni sem við erum að taka að okkur.
Sjálfur nota ég Asana til að halda utan um öll innri verkefni, ásamt því að nota kerfi sem heitir Notion sem hálfgerða dagbók til að skrifa niður hugmyndir og pælingar.
En síðan er ég auðvitað mannlegur. Þó maður leggi upp með að vera ávallt skipulagður þá koma alltaf tímabil þar sem ég er algjörlega út um allt; þá er mikilvægt að staldra við, ramma verkefnin inn og keyra svo allt aftur af stað, skipulega.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ég hef alltaf verið mjög kvöldsvæfur og finnst því gott að fara snemma í háttinn. Sem betur fer er konan mín eins hvað þetta varðar og förum við því öll fjölskyldan yfirleitt að sofa ekki mikið seinna en níu á kvöldin.“