Eldhús úr endurunnum plastflöskum Kvik 22. júní 2023 11:43 Avolia í litnum Clay og Corisa í dökkri eik er nútímaleg og náttúruleg blanda af efni og litum. Kvik hefur verið leiðandi í innréttingahönnun og framleiðslu í 40 ár og leggur höfuð áherslu á að öll framleiðslan sé með sjálfbærni og umhverfisvernd að leiðarljósi.
Allur viður sem notaður er í framleiðsluna er með FSC sjálfbærnivottun og frá árinu 2020 eru allar hurðartýpur, sem ekki eru úr náttúrulegum við, með yfirborðfilmu úr endurunnum PET plastflöskum. Þetta jafngildir að 10,5 milljónir plastflaskna öðlist nýtt líf. Innréttingarnar berast til landsins flatpakkaðar, sem dregur úr kolefnisspori. Oakwood er handverksinnrétting úr gegnheilli eik. „Við erum ákaflega stolt af því að nýjasta eldhúslínan sem ber nafnið Oakwood hafi unnið hönnunarverðlaun hjá lesendum Bo Bedre í Danmörku,“ segir Atli Ragnar Ólafsson, sölustjóri Kvik í Reykjavík. „Oakwood eldhúsið okkar er óður til danskrar hönnunarhefðar og handverks. Skúffurnar eru úr gegnheilli FSC vottaðri eik með láréttum línum og samsettar með fínlegri geirneglingu sem ber vott um meistaralegt handbragð.“ Dönsk hönnun og stílhreint yfirbragð eru í fyrirúmi í fjölbreyttu úrvali eldhúsinnréttinga Kvik. Hann segir Kvik hafa ákveðna sérstöðu á markaðnum en þar mætti t.d. nefna að fyrirtækið bjóði meira skápapláss en helstu keppinautar á stöðluðum einingum. „Auk þess bjóðum við upp á einingar sem eru um 13 cm dýpri en með því móti fáum við um 40% meira skápapláss sem gefur aukið borðpláss,“ bætir hann við. „Við erum ákaflega stolt af því að nýjasta eldhúslínan sem ber nafnið Oakwood hafi unnið hönnunarverðlaun hjá lesendum Bo Bedre í Danmörku," segir Atli Ragnar Ólafsson, sölustjóri Kvik í Reykjavík, sem sýnir hér viðskiptavinum úrvalið. Hægt er að bóka tíma hjá hönnuðum þar sem lögð er áhersla á að vinna teikningar með viðskiptavinum, ýmist í versluninni eða í gegnum fjarfundabúnað. „Þannig gerum við góðar hugmyndir að glæstum veruleika á skilvirkan máta. Við getum síðan boðið innréttingarnar ósamsettar fyrir þau sem þess óska, samsettar eða uppsettar, allt eftir óskum og þörfum hvers og eins. Við leysum síðan auðvitað allar áskoranir sem upp geta komið í ferlinu hratt og örugglega, enda er það hagur allra að lokaniðurstaðan verði sem allra best.“ Einstök og klassísk hönnun fyrir baðherbergið. Atli segir markmiðið vera að gera innréttingakaupin áhugaverð og skemmtileg og kaupferlið eigi að vera eins þægilegt og kostur er. „Kvik er danskur innréttingaframleiðandi sem leggur áherslu á vandaða hönnun, hágæða vörur og viðráðanleg verð. Þetta eru þau gildi sem ráða ferðinni í öllum þeim rúmlega 170 Kvik verslunum sem til eru.“ Kvik eru með fjölbreyttar lausnir fyrir fataskápa og fataherbergi. Kvik er til húsa á Suðurlandsbraut 16, á sama stað og Rafha, raftækjaverslun. Nánari upplýsingar á rafha.is/kvik.
Hús og heimili Mest lesið Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Lífið „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman Lífið Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Lífið Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Lífið samstarf Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Lífið Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Lífið Þingmaður selur húsið Lífið Fleiri fréttir Setningar sem eiga skilið innrömmun Konráð kveður á mildan hátt Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Íslensk nauta- og sælkeratólg slær í gegn Sú besta hingað til Sjórinn er enn á sínum stað Þroskuð húð fær aukinn ljóma Mzungu þýðir ekki annað en trúgjörn bráð Amor svífur yfir Norðurlandi Aftenging í sítengdum heimi Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Sjá meira